Haffjarðará 2.-4. sept 2009

Þá er komið að því að ég hef frá einhverju að segja hérna á þessari síðu minni… loksins. Loksins komst ég sjálfur í veiðitúr og það langþráðan veiðitúr. Í fyrra fór ég í fyrsta skipti í Haffjarðará sælla minninga og hef mörgum sagt frá þeim túr og því sem ég lærði þar. Þá var ég yfirspenntur og illa fyrir kallaður nánast allan tímann og ekkert gekk. Í ár skyldi ég ekki láta það gerast!!

Í fyrra drógum við svæði 2 sem er miðsvæðið og kannski það svæði sem minnst hefur verið að gefa. Í ár drógum við aftur það svæði. Áin var hrikalega vatnslítil, það var kalt og rok. Við byrjuðum í Neðri ármótum og það var sama sagan í ár og í fyrra, fiskur að stökkva um allt en tók ekkert sem fyrir hann var lagt. Geiri sem var á hinni stönginni veiddi flóann á meðan ég og kallinn veiddum strenginn. Geiri ákvað að veiða sig niður í Kvörn en við keyrðum þangað niður eftir. Á leiðinni sjáum við hvar Geiri er að sleppa fisk í stað númer 25. Sá reyndist vera 70 cm hrygna sem tók hálftommu rauða Frances. Þessi staður þar sem hann fékk fiskinn er lítill en geymir mikið af fisk í svona vatni eins og var þarna. Þarna eru flúðir og smáfossar sem fiskurinn þarf að fara upp og við landið austan megin er stór steinn útí ánni rétt neðan við flúð. Fyrir framan steinninn og í raun allt í kringum hann er djúpt og þar voru ábyggilega c.a. 10 fiskar að bíða rétta tækifærisins að leggja á flúðirnar og fossana. Geiri hafði læðst aftan að steininum og komið flugunni upp í strauminn.

Við reyndum Kvörnina en án teljandi árangurs. Tókum Nebba, Dick’s pool og Urð en urðum ekki varir. Þegar klukkan

Sá fyrsti og sá minnsti

Sá fyrsti og sá minnsti

sló átta fórum við í hús í sauna og þriggja rétta dinner. Samtals fengust 7 laxar á vaktinni. Morguninn eftir áttum við svæði 3 því það var ákveðið að breyta skiptingunni frá því í fyrra. Við byrjuðum í Ófæru og byrjuðum á Hitch, skiptum í litlar flugur og spændum boxin yfir þennan stað. Á meðan þessu stóð sáum við ítrekað laxa stökkva neðar en við vorum að veiða og ákváðum að færa okkur þangað. Þar er mjög lítill straumur og ég ákvað að byrja með Sun Ray og renna hratt yfir. Geiri fór neðar í Broken Bank, eða bankahrum eins og við köllum hann. Laxinn leit ekki við Sun Rayinum svo við ákváðum að fara örlítið dýpra með kvarttommu þýskri Snældu. Ég kastaði örlítið upp fyrir mig og leyfði flugunni að sökkva. Dró fluguna svo inn í stuttum snöggum rykkjum en þó ekkert rosalega hratt. Fljótlega er togað á móti og eftir snarpa viðureign landaði ég minnsta laxi sem ég hef fengið. 55 cm hrygna fékk að fara aftur.

Við fórum í Nesenda og skiptum liði. Geiri og Guðbjörg fóru í neðri hlutann en við kallinn í efri. Sáum mikið af fiski stökkva en ekki vildi hann taka. Í fyrra tók ég þrjá í beit þarna úr efri hlutanum og Geiri að minnsta kosti einn úr neðri. Það gekk ekkert núna. Í síðasta rennslinu renndi ég yfir staðinn með hálftommu svörtum Frances og kláraði bæði efri og neðri hlutann. Neðarlega í neðri hlutanum kastaði ég flugunni örlítið upp fyrir mig og leyfði að sökkva duglega. Dró svo inn í þessum stuttu rykkjum sem virkuðu svo vel í Ófæru. Það er tekið í og fiskur er á. Ég spólaði inn slakann en komst ekki mikið lengra því fiskurinn lak af. Við færðum okkur neðar.

Þessi slapp!!

Þessi slapp!!

Í Hellisfljóti byrjuðum við á litlum flugum og það var sama sagan, fiskur að stökkva um allt en tók ekki. Ég var alveg á því að við þyrftum að koma flugunni niður til hans en var ekki á því að fara í sökk- eða sökkendalínur svo að lítil tungsten Frances túpa varð fyrir valinu. Kastaði henni upp í strauminn og lét hana leka niður. Dró inn í stuttum, ákveðnum rykkjum og svo sá ég hvar fiskur rennir sér upp og tekur fluguna. Hann bankar höfðinu mikið og ef eitthvað er að marka það sem ég lærði í “Svona tekur laxinn” þá þýðir það að fiskur er illa tekinn. Ég segi við kallinn voða spekingslegur “þessi er illa tekinn”. Þarna er mikið af grjóti og mikið slý og ég tók fast á fisknum og hélt stönginni hátt uppi (eins og maður á að gera samkvæmt myndinni). Eftir c.a. 3 – 5 mín grefur fiskurinn trýnið í slý og allt verður slakt. Jæja maður lærir af mistökunum og kannski hefði ég átt að vera grófari í að halda trýninu frá botninum. Yfirleitt nota ég ekki þríkrækjur en einhverra hluta vegna var ég með slíka þarna og eflaust hafa einhverjar krækjurnar flækst í slýinu og losað fluguna. Hvað um það, það þýðir ekkert að velta sér uppúr þessu og við köllum þetta bara LDR (Long Distance Release).

Ekki gerðist nú fleira markvert þarna á þessari vakt og við drógum okkur í hlé. Eftir að hafa sporðrennt þriggja rétta hádegisverði og nokkrum kaffibollum var aftur kominn tími á svæði 2. Morgunvaktin hafði gefið 8 laxa og heildartalan í hollinu komin í 15 laxa. Geiri og Guðbjörg byrjuðu í Kvörn en við pabbi tókum Neðri ármót og stað númer 25. Ég lét reyna á steininn sem Geiri hafði fengið fisk á og einn annar veiðimaður líka. Á þessum nótum langar mig að blanda mér í smá umræðu. Í sumar birtist frétt á Vötn og Veiði um að menn höfðu veitt andstreymis í Hrútafjarðará í roki. Upp spunnust umræður um þetta á veiði.is þar sem einhver talaði um að alvöru veiðimenn gerðu ekki svona. Rökin voru þau að menn væru þá bara að húkka fisk. Mín skoðun er sú að þetta er algjört kjaftæði!! Ég hef milljón sinnum horft á fiska hreinlega færa sig þegar túpan eða flugan kemur rekandi niður ána. Fyrir þennan túr hafði ég fengið tvo laxa með því að kasta lítilli Frances keilutúpu andstreymis og í báðum tilvikum hafði laxinn tekið fluguna. Í fyrra skiptið horfði ég á endann á flugulínunni og þegar ég sá hana kippast til duglega lyfti ég stönginni og fiskurinn var á. Flugan var klesst í tunguna á fisknum og ekki fór á milli mála að hann tók fluguna. Í seinna skiptið sá ég fluguna allan tímann og horfði á laxinn renna sér upp úr djúpinu og negla fluguna. Horfði svo á hann snúa sér við með fluguna í kjaftinum og lyfti þá stönginni. Í mínum huga snúa alvöru veiðimenn erfiðum aðstæðum sér í vil og ná fiskum þegar aðrir ná þeim ekki með hugmyndaauðgi og tilraunastarfsemi. Ég nota bara flugu, flugulínu, flugustöng og fluguhjól alveg eins og hinir. Ég leik mér ekki að því að húkka. Ég veiði silung andstreymis og það gengur oft vel og því ætti ég ekki að gera það sama með lax þegar annars er ekki hægt eða mjög erfitt að koma fyrir hann flugu á “hefðbundinn hátt”? Ef þetta væri málið væru þá ekki alveg jafn miklar líkur á því að húkka með því að strippa flugur upp í gegnum svona hylji? Þá kemur flugan aftan að fiskum og þeir hafa ekki sama séns á að bregðast við!!

Hvað um það. Þarna við steininn er erfitt að komast að að ofan en ég byrjaði á að reyna það. Kallinn lagði sig á bakkanum á meðan ég fékk að þaulreyna við steininn. Byrjaði á að hitcha hvítfissið og svo í kringum steininn. Ég var töluvert fyrir ofan og á hnjánum því annars ber maður yfir staðinn eins og viti. Því næst setti ég silver sheep #12 á tvíkrækju en ekki vildi fiskurinn koma upp að sækja þetta. Setti ég þá Tungsten keilutúpu og kastaði að ofan. Það gekk illa því þarna þarf að koma flugunni á milli steina og ég var ekki með réttu stöngina í verkið. Fór ég þá í land, skipti um stöng og kom aftan að steininum. Með sömu tungsten túpunni kastaði ég upp í strauminn og lét fluguna koma niður. Þá er rifið hressilega í og fiskurinn er á. Med det samme stekkur þessi líka boltahængur allur uppúr og ég sá voldugan krókinn í neðri skolti. Við lendinguna losnaði úr honum. Svona fór um sjóferð þá.

Númer 2 og jafn stór og sá fyrsti

Númer 2 og jafn stór og sá fyrsti

Við færðum okkur niður í Kvörn og kallinn byrjaði með smáflugunum. Við skiptumst á að kasta mismunandi stærð af flugum og þegar ekkert gekk ákvað ég að reyna andstreymisaðferðina aftur. Setti minnstu frances  microkeilutúpuna mína á og kastaði upp fyrir smá rennu sem er á milli steina. Þá er rifið kröftulega í og fiskur á. Sá óð um allt þarna og flækti sig á bakvið steina og þetta var meiriháttar hafarí að koma honum á land. Reyndist krækjan vera á kafi í efri skolti og ekki fór á milli mála að hann hafði tekið fluguna. Reyndar fór það ekkert á milli mála strax í byrjun því takan var svo kröftug. 55 cm fiskur fékk að fara aftur. Þarna voru komnir 3 laxar í sumar sem höfðu tekið svona andstreymis. Við fórum í hús spenntir fyrir síðustu vaktinni sem við áttum á svæði 1. Samtals voru komnir 20 laxar á land í hollinu.

Sá stærsti í ferðinni og í sumar

Sá stærsti í ferðinni og í sumar

Síðasta vaktin var runnin upp og við áttum svæði 1. Við ákváðum að Geiri tæki gömlu brú og Gretti en við færum í Sauðhyl. Síðan myndum við skipta eftir 2 tíma því aðeins er veitt í 4 tíma á síðustu vakt. Fall er fararheill eins og sagt er en sá málsháttur var mér ekki ofarlega í huga þegar ég flaug á hausinn útí miðri á rétt áður en ég mundaði hitchið í Sauðhyl. Með hjartslátt í hné og framhandlegg eftir fallið hitchaði ég yfir en án árangurs. Pabbi fór umferð með Green butt #14 og ég með Frances #16. Kallinn stækkaði og fór yfir með Green highlander #10 og þegar ekkert af þessu virkaði var kominn tími til að koma þessu niður. Við settum undir litla Tungsten Frances túpu og í fyrsta kasti var hann á. Eftir skemmtilega baráttu landaði ég 76 cm hrygnu sem fékk að sjálfsögðu að fara aftur. Nú var komið að kallinum að taka fisk og hann fór aðra umferð með sömu flugu en ekkert gekk. Ég tók við og planið var að færa sig niður á neðri hlutann og veiða hann síðasta hálftímann. Í þriðja kasti tekur fiskur og mér finnst eitthvað skrýtið við hann. Fyrst hélt ég að hann væri illa tekinn en í löndun sá ég

Hnúðlax úr Sauðhyl. Viðbjóður!!

Hnúðlax úr Sauðhyl. Viðbjóður!!

hvers kyns var. Ég hafði fengið hnúðlax sem ljótur spriklaði þarna á eyrinni og lét öllum illum látum. Þessi fengi ekki frelsið á ný. Eftir að hafa rotað hann og blóðgað hélt hann áfram að sprikla og svilin sprautuðust úr honum. Þvílíkur viðbjóður. Kallinn fór síðustu umferð yfir og setti í fisk en missti fljótlega. Það var kominn tími á að færa sig ofar og skipta við Geira.

Geiri hafði fengið fisk á Sun Ray í Gömlu brú og við byrjuðum þar. Við ákváðum að eyða ekki miklum tíma þarna og veiða bara vel yfir strenginn með litlu Tungsten Frances túpunni. Fljótlega setti ég í fisk en eftir stutta baráttu lak úr honum. Kallinn tók við og fær fljótlega töku en meira var það ekki þarna. Þá vorum við búnir að landa 2 og missa 2. Við fórum í Gretti og aftur byrjaði ég. Það lítur út fyrir að ég sé óþolandi frekur á stöngina en það rétta í málinu er að kallinn heimtar að ég byrji á öllum stöðum og geti þannig gefið góð ráð í sambandi við botninn og ýmislegt svoleiðis. Í þriðja kasti er tekið svakalega í túpuna og stöngin

Ef og hefði!! Þessi HEFÐI verið minn stærsti EF ég hefði ekki misst hann.

Ef og hefði!! Þessi HEFÐI verið minn stærsti EF ég hefði ekki misst hann.

kengbognar. Það var eitthvað þungt á hinum endanum og eitthvað þyngra en ég hef nokkurn tímann haft á endanum. Fiskurinn rýkur niður í rennu sem er þarna og haggast ekki þaðan í góða stund. Ég sá fiskinn vel og sá að hann var stór, á að giska kannski 16-17 pund. Ég gat ekkert stuggað við honum sama hvað ég reyndi en reglulega tók hann rokur niður ána en fór svo alltaf upp í rennuna aftur. Eftir c.a. 10 mínútur snýr hann sér við og allt er slakt. Djöfull var ég svekktur!!! Ég settist niður að róa mig og kallinn tók við. Hann fór duglega yfir en án árangurs. Við héldum áfram en ekkert gekk. Í lokin setti ég Sun Ray undir og 5 mínútur í tólf neglir fallegur 59 cm smálax fluguna. Góður endir á annars ágætum túr. Enduðum í að landa 5 löxum en missa 6. Hollið endaði með 27 laxa sem er töluverð fækkun frá því í fyrra en í fullu samræmi við veiðitölur þessa árs, kulda og vatnsleysi.

Ein ummæli

  1. Sæll, þetta hefur verið ágætis túr hjá þér þó fleirri hafi verið tapaðir en landað. Samt skárra að setja í fisk og missa en ekki setja í fisk yfir höfuð ;)

Skildu eftir svar