Nýtt hefti Sportveiðiblaðsins komið út

Á dögunum kom út nýjasta hefti Sportveiðiblaðsins. Útgáfan sem slík er náttúrulega ekkert nema merkileg fyrir stangveiðimenn en þetta hefti er þó öllu sérstakara en öll hin. Þar má nefninlega finna viðtal við afar fallega stúlku sem heitir Guðrún um maríulaxinn hennar sem hún fékk í sumar. Það vill svo skemmtilega til að þessi fallega stúlka er kærasta mín og ég er að sjálfsögðu rígmontinn með hana.

En blaðið er auðvitað fleiri en ein blaðsíða og, svo ég tyggi nú á gamalli klisju, stútfullt af skemmtilegu efni. Ég fékk eintak í hendurnar í dag þó blaðið sé fyrir nokkru komið í búðir. Fjallað er um stangveiði og skotveiði á ýmsan hátt og meðal efnis er viðtal við Pétur Jóhann Sigfússon leikara sem er víst haldinn veiðidellu, veiðistaðalýsing fyrir Tungufljót, umfjöllun um Langá og fleira skemmtilegt. Skemmtilegast er þó að sjálfsögðu að lesa viðtalið við konuna mína og ekki skemmir fyrir myndin af þessari elsku sem ég tók á bakkanum í sumar. Ef vel er að gáð má sjá laxalús á einni af gervinöglum konunnar minnar. Getið þið sagt mér á nögl hvaða fingurs lúsin er? Kaupið blaðið, flettið upp myndinni og kommentið hérna.

Ein ummæli

  1. Löngutöng hægri handar

Skildu eftir svar