Tungulækur 14.-16. september 2009

Jæja jæja… Það er alltof langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna og það er alls ekki nógu gott. Í fyrra reyndi ég að skrifa eitthvað á hverjum degi en það hefur bara alls ekki gengið upp í sumar. Ég var búinn að lofa upp í ermina á mér. Nú er vertíðin að mestu búin og ég get farið að skrifa um hvað á daga mína hefur drifið núna í haust. Síðasta veiðifærsla var frá Laxá á Refasveit svo að ég fer bara beint í næstu.

Byrjum á forsögu þess máls. Ég held líka úti bloggsíðu á ensku og í gegnum hana fékk ég tölvupóst síðasta vetur frá ungum bandaríkjamanni sem vildi vita hvort hann ætti að koma til Íslands eða fara til Argentínu að veiða urriða. Ég sagði honum að koma hingað og hann bað mig að aðstoða sig við að plana 20 daga trout bumming ferð á Íslandi. Sem og ég gerði og tók hann m.a. með mér upp á Grímstunguheiði. Bandaríkjamaðurinn veiddi vel og skemmti sér konunglega. Hann sagði mér að á Íslandi hefði hann upplifað þá allra bestu urriðaveiði á sinni annars stuttu ævi. Þetta þótti mér gaman að heyra.

Á sama tíma var að koma út fluguveiði DVD mynd sem heitir The Source – Tasmania. Ég hafði forpantað eintak og það hafði bandaríkjamaðurinn líka gert. En þegar myndin kom út hafði hún hækkað mjög í verði útaf gengi krónunnar svo að ég hætti við. Bandaríkjamaðurinn gerði það ekki og keypti sér myndina. Ég nafngreindi hann í bloggpósti á ensku sem framleiðendur myndarinnar lásu. Fyrir tilviljun mundi þau eftir nafninu hans og höfðu samband til að spyrja um veiði hérna á Íslandi. Hann sagði þeim allt af létta og gaf þeim tölvupóstfangið mitt. Þau höfðu samband þegar þau voru komin til landsins og báðu mig að veiða með sér. Svona tilviljanir komu hjólunum af stað og gerðu það að verkum að 14. september var ég staddur í Tungulæk að veiða fyrir myndavélina fyrir nýja mynd, The Source – Iceland.

Við byrjuðum vel í Tungulæk og ég fékk nánast strax 7 punda sjóbirting á þýska Snældu á Breiðunni. Veiðifélagarnir tóku sitt hvorn birtinginn og einn lax áður en við færðum okkur neðar í ána. Ég var vopnaður nokkrum mismunandi eintökum af túpu sem heitir víst Bizmo og Eygló í Veiðivon hafði prangað inn á mig. Fyrsta vaktin gekk vel þó ég muni ekki nákvæmlega hversu marga fiska við fengum. Morguninn eftir kíkti Þórarinn á okkur þegar við vorum að veiða Réttarhylinn en þá hafði Valdi fengið einn 82 cm lax þar fyrr um morguninn. Ég var að veiða með sömu aðferð og Valdi og sömu flugu. Þórarni leist ekki á blikuna og sagði mér að setja eitthvað svart undir og kasta andstreymis þarna í strenginn. Láta sökkva vel og strippa til baka. Svo fór hann en ég skipti um flugu og setti undir Bizmo með svörtum og appelsínugulum væng og gylltum búk. Fyrsta kast og lax tekur fluguna. Svona gekk þetta og ég setti í 4 laxa en landaði þremur á stuttum tíma. Kallaði ég þá í félagann og lét hann hafa stöngina mína og bauð honum að prófa. Sá setti í tvo en landaði bara einum. Þetta var einum of einfalt svo við fórum í mat.

Eftir hádegi gekk ekkert hjá mér en félagarnir mokuðu upp birtingi. Ég skipti ítrekað um flugur og reyndi bókstaflega allt en ekkert gekk. Setti ég þá undir bleikan nobbler og viti menn… í fyrsta kasti fékk ég fallega bleikju. Valdi var að veiða staðinn fyrir ofan mig og hann virtist vera að fá fisk nokkuð stöðugt svo ég spyr hvað hann sé að nota. Flæðamús var svarið svo að ég kíki í boxið. Jú ég var með eina mjög illa farna Flæðamús í boxinu og skellti henni undir.

Í 3-4 kasti er rifið hrottalega í hjá mér. Taka sem ég mun aldrei gleyma hún var svo svakaleg. Ég var með Teeny 300 línu og var að veiða djúpt á frekar hröðu strippi. Frekjan og grimmdin í tökunni var þvílík að ég hef varla sofið almennilega síðan. Takan á sér stað í miðri ánni en aðeins sekúndubrotum seinna hlunkast fiskurinn hálfur uppúr við bakkann hinum megin. Þvílík skepna! Brúnn, leginn, hnausþykkur sjóbirtingur drífur ekki allur uppúr ánni og ég kenni holdafarinu um. Þetta var eins og Amerískt holdanaut.

Ég var með þvílíkan vinnugrip í höndum, 9,5 feta stöng fyrir línu #9 og 18 punda maxima taum. Ég réði ekki neitt við neitt en hélt bara spennu á meðan fiskurinn rauk upp ána og ég elti. Svo kafaði kvikindið djúpt og ég gat ekkert annað en haldið við. Svo er skyndilega allt slakt. Ég spóla inn línuna og sé þá hvar taumurinn hafði slitnað. Ég trúði þessu ekki og gat ekkert annað en starað útí loftið og endurupplifað þessa “brútal” töku í huganum. Þetta er allt saman til á myndbandi og verður gaman að sjá þegar myndin kemur út.

Ég færði mig á næsta stað og setti Bizmo undir með skærgulum búk. Þessi túba hafði gefið mér lúsuga birtinga fyrr um

Skepnan

Skepnan

daginn en nú var komið fram undir kvöld. Ég var að veiða Gussann og fyrir miðjum hyl er rifið í. Ég finn að það er eitthvað þungt á hinum endanum en þó langt frá því sama þyngd og í síðasta fisk. Ég tók fast á þessum, fullviss um að það væri ekkert til að skera tauminn á þessum stað og ég nýbúinn að skipta um taum. Stuttu seinna landa ég feitasta urriðakvikindi sem ég hef séð. Fiskurinn var mældur 70 cm langur og vigtaður 5,5 kíló. Eftir mikla myndatöku og vesen fékk þessi höfðingi að fara aftur í ána til að fitna enn meir.

Við enduðum með að fá 31 fisk á tveimur dögum á þrjár stangir. Þar af voru 10 laxar, 18 sjóbirtingar, 2 bleikjur og 1 staðbundinn urriði. Stærsti fiskurinn var c.a. 12 pund, svo þessi 11 punda og svo allavega einn um 9 pund. Minnst var önnur bleikjan tæp 2 pund. Frábær túr og allir voru sáttir. Frá Tungulæk lá leið okkar Valda í afslöppunartúr í Laxá í Nesjum. Meira um það síðar.

2 svör

  1. “Fiskurinn var mældur 70 cm langur og vigtaður 5,5 kíló.”

    Bara fyrir forvitnissakir,mældiru ummálið á honum?
    Ég fékk einn 80 cm urriða vel í holdum í sumar og hef verið að velta því fyrir mér hversu þungur hann var.

    • við mældum nú ummálið en ég man bara ekki hvað það var, minnir samt eitthvað um 40+ cm. Samkv. kvarða VMST er 80 cm lax 5,3 kg minnir mig. Ég er nú að spá í að fjárfesta í svona háf með innbyggðri vigt, algjör snilld (fæst í Veiðivon, mörkinni 6).

Skildu eftir svar