Ný bók að koma – Silungaflugur

Árið 2006 kom út bókin Laxaflugur þar sem Bjarni Róbert Jónsson og Valgarður Ragnarsson völdu og hnýttu laxaflugur en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Bókin hitti vel í mark og er nú uppseld hjá útgefanda. Í fyrra kom út bókin Straumflugur og í þetta sinn var það enginn annar en Sigurður Pálsson sem valdi og hnýtti flugur. Sú bók varð álíka vinsæl og er líka uppseld hjá útgefanda.

Þessar bækur tilheyrðu báðar bókaflokknum Í íslenskri náttúru og voru báðar hrikalega flottar. Ég fullyrði að í báðum þeirra voru flugur sem menn höfðu ekki séð áður eða í það minnsta útfærslur sem voru búnar að gefa höfundum vel. Nú er loksins komið að því að þriðja og síðasta bók seríunnar, Silungaflugur, er að koma út.

forsida

Forsíðumynd Silungaflugna sem kemur út nú fyrir jólin.

Silungaflugur skarta hvorki meira né minna en sex landsþekktum fluguhnýturum sem völdu sínar uppáhaldsflugur að sýna okkur hinum. Og ekki nóg með það heldur bættust við leynivopn frá nokkrum flinkum hnýturum til viðbótar. Bókin hefur að geyma yfir hundrað flugur,  myndir, uppskriftir og í sumum tilvikum smá fróðleikskorn um flugurnar. Hnýtararnir sem gert er skil í bókinni og hnýta flestar flugurnar eru í stafrófsröð:

Bjarni Róbert Jónsson

Engilbert Jensen

Jón Aðalsteinn Þorgeirsson

Sigurbrandur Dagbjartsson

Sveinn Þór Arnarsson

Þór Nielsen

 

Hér eru votflugur, þurrflugur, púpur, yfirborðspúpur og jafnvel ein eða tvær straumflugur. Leynivopn Sigurðar Pálssonar, Valgarðs Ragnarssonar, Kristjáns Ævars Gunnarssonar, Arnar Bjarnasonar og Sigurbergs Guðbrandssonar má svo finna aftast í bókinni með uppskriftum. Að lokum eru myndir af flugum sem hafa gefið vel og hægt er að fá í völdum vefverslunum.

Aftur er það Lárus Karl Ingason sem tekur myndir en í þetta skiptið er það yðar einlægur sem heldur utan um textann í bókinni og Gísli Már Gíslason skrifar inngangskafla um fæðu silungs í straum- og stöðuvatni. Bókin er í alla staði glæsileg og þarft framtak fyrir stækkandi fjölda silungsveiðimanna hér á landi.

Bókin kemur út innan skamms og er tilvalin jólagjöf fyrir veiðimanninn. Hér að ofan má sjá forsíðu bókarinnar en hana prýðir rauð Toppfluga Engilberts Jensen.

Skildu eftir svar