Húseyjarkvísl dagur 1.

Það er ekki seinna vænna að fara að reyna að blása einhverju lífi í þetta blogg mitt. Hef engann veginn nennt að sValdi Kaldi með sjóbirting í haldi!!inna þessu neitt undanfarna mánuði og svo sem ekkert víst að ég muni nenna því neitt frekar í sumar. Eiginlega eina ástæða þess að ég er að skrifa eitthvað núna er sú að ég er vaknaður á undan strákunum í veiðihúsinu – get ekki sofið fyrir bakinu.

Við erum staddir nokkrir félagarnir í Húseyjarkvísl í Skagafirði og í dag er fyrsti heili dagurinn okkar við veiðar en við byrjuðum seinni partinn í gær. Þetta leit ekkert alltof vel út þegar horft var á veðurspá en við fyrir löngu hættir að pirra okkur á veðrinu enda púðri eytt í ekki neitt við slíkar aðstæður. Við komuna í veiðihús heyrðum við í þeim sem voru að hætta en þeim hafði gengið vel þann tíma sem þeir veiddu hérna. Við vorum því eðlilega mjög spenntir þegar við fórum af stað og byrjuðum í veiðistöðum nr. 7-8.

Mjög fljótlega eftir að við byrjuðum fékk reynsluboltinn í hópnum fallegan 70 cm geldfisk á fluguna Villimey sem ég henti uppskrift af inn á Facebook um daginn.

Ég verð að enda þessa færslu mjög snögglega því nú vakna félagarnir einn af öðrum og tími til að rýma borðstofuborðið svo menn geti gleypt í sig morgunmat. Í hnotskurn þá enduðum við með að landa 16 fiskum af öllum tegundum sem veiðast á Íslandi – stærstur var hoplax 75 cm langur en þessi 70 cm geldfiskur sá feitasti. Þarna voru líka um 60 cm staðbundinn urriði, 60, 68 og 69 cm birtingar og aðrir minni. Færi frekari fréttir, myndir og klára vonandi söguna síðar.

Ein ummæli

  1. Öfund :-)
    Kveðja frá Akureyri

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.