The Source – Ísland, fluguveiðimynd á DVD hefur verið svakalega vel tekið á Íslandi. Ég hef verið að bjóða upp á tilboðspakka með öllum þremur myndunum úr seríunni og á nú aðeins 7 pakka eftir á 9.990.- kr. stykkið en luma líka á 4 pökkum þar sem The Source – New Zealand er lítillega útlitsgölluð. Þeir pakkar fara á 8.190.- kr. stykkið.
En mig langar að segja aðeins frá þessum frábæru dómum sem myndin íslenska hefur verið að fá. Einar Falur Ingólfsson hjá Morgunblaðinu gefur myndinni 4 stjörnur og minnist á að “íslenskir framleiðendur veiðiefnis megi taka nálgun nýsjálenskra kollega sinna sér til fyrirmyndar”. Einar heldur áfram og segir “fyrst og fremst er þessi kvikmynd glæsilegt kvikmyndaljóð um fluguveiði á Íslandi og þar er íslensk náttúra í allri sinni dýrð í aukahlutverki.” Sannarlega frábær dómur.
Garðar Örn Úlfarsson hjá Fréttablaðinu gaf myndinni líka fínan dóm eða þrjár stjörnur. Hann minnist líka á það eins og Einar að aldrei hafi sést svona vinna við gerð veiðiefnis á Íslandi þegar hann segir “Frábær myndataka á köflum lyftir veiðimyndinni The Source – Ísland í hærri hæðir en vaninn er um slíkar myndir hérlendis.”
Ég mun vera með kynningu á myndinni í dag í Hagkaup Smáralind kl. 16:00 og svo í Eymundsson Smáralind kl. 17:00. Ég mun spila myndina, segja frá því sem á daga okkar dreif við tökur á myndinni og svara spurningum ef einhverjar eru. Kíkið endilega við.
Svo vil ég minna á hvar hægt er að fá myndina:
Landsbyggðin:
Veiðiflugan Reyðarfirði
Eymundsson Ísafirði
Eymundsson Akureyri
Hagkaup Akureyri
Eymundsson Vestmannaeyjum
Eymundsson Akranesi
Eymundsson Keflavík
Hagkaup Njarðvík
Hagkaup Borgarnesi
Kaupfélag Skagfirðinga – Sauðárkróki
Klakkur – Vík í Mýrdal
Höfuðborgarsvæðið:
Veiðivon
Veiðibúðin við Lækinn
Veiðiflugur
Vesturröst
Veiðiportið
Hagkaup Garðabæ
Hagkaup Smáralind
Hagkaup Skeifu
Hagkaup Kringlu
Hagkaup Spöng
Hagkaup Holtagarðar
Eymundsson Hafnarfirði
Eymundsson Smáralind
Eymundsson Mjódd
Eymundsson Suður Kringlu
Eymundsson Norður Kringlu
Eymundsson Austurstræti
Eymundsson Skólavörðustíg
Eymundsson Hallarmúla
Griffill Skeifunni
Útilíf Glæsibæ
Bókabúð Máls og Menningar
Filed under: Uncategorized
