Blogg Stjána Ben

Ný bók að koma – Silungaflugur
Árið 2006 kom út bókin Laxaflugur þar sem Bjarni Róbert Jónsson og Valgarður Ragnarsson völdu og hnýttu laxaflugur en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Bókin hitti vel í mark og er nú uppseld hjá útgefanda. Í fyrra kom út bókin Straumflugur og í þetta sinn var það enginn annar en Sigurður Pálsson sem valdi og hnýtti flugur. Sú bók varð álíka vinsæl og er líka uppseld hjá útgefanda.

Þessar bækur tilheyrðu báðar bókaflokknum Í íslenskri náttúru og voru báðar hrikalega flottar. Ég fullyrði að í báðum þeirra voru flugur sem menn höfðu ekki séð áður eða í það minnsta útfærslur sem voru búnar að gefa höfundum vel. Nú er loksins komið að því að þriðja og síðasta bók seríunnar, Silungaflugur, er að koma út.

Forsíðumynd Silungaflugna sem kemur út nú fyrir jólin.

Silungaflugur skarta hvorki meira né minna en sex landsþekktum fluguhnýturum sem völdu sínar uppáhaldsflugur að sýna okkur hinum. Og ekki nóg með það heldur bættust við leynivopn frá nokkrum flinkum hnýturum til viðbótar. Bókin hefur að geyma yfir hundrað flugur,  myndir, uppskriftir og í sumum tilvikum smá fróðleikskorn um flugurnar. Hnýtararnir sem gert er skil í bókinni og hnýta flestar flugurnar eru í stafrófsröð:

Bjarni Róbert Jónsson

Engilbert Jensen

Jón Aðalsteinn Þorgeirsson

Sigurbrandur Dagbjartsson

Sveinn Þór Arnarsson

Þór Nielsen

Hér eru votflugur, þurrflugur, púpur, yfirborðspúpur og jafnvel ein eða tvær straumflugur. Leynivopn Sigurðar Pálssonar, Valgarðs Ragnarssonar, Kristjáns Ævars Gunnarssonar, Arnar Bjarnasonar og Sigurbergs Guðbrandssonar má svo finna aftast í bókinni með uppskriftum. Að lokum eru myndir af flugum sem hafa gefið vel og hægt er að fá í völdum vefverslunum.

Aftur er það Lárus Karl Ingason sem tekur myndir en í þetta skiptið er það yðar einlægur sem heldur utan um textann í bókinni og Gísli Már Gíslason skrifar inngangskafla um fæðu silungs í straum- og stöðuvatni. Bókin er í alla staði glæsileg og þarft framtak fyrir stækkandi fjölda silungsveiðimanna hér á landi.

Bókin kemur út innan skamms og er tilvalin jólagjöf fyrir veiðimanninn. Hér að ofan má sjá forsíðu bókarinnar en hana prýðir rauð Toppfluga Engilberts Jensen.

Tungulækur 14.-16. september 2009
Jæja jæja… Það er alltof langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna og það er alls ekki nógu gott. Í fyrra reyndi ég að skrifa eitthvað á hverjum degi en það hefur bara alls ekki gengið upp í sumar. Ég var búinn að lofa upp í ermina á mér. Nú er vertíðin að mestu búin og ég get farið að skrifa um hvað á daga mína hefur drifið núna í haust. Síðasta veiðifærsla var frá Laxá á Refasveit svo að ég fer bara beint í næstu.

Byrjum á forsögu þess máls. Ég held líka úti bloggsíðu á ensku og í gegnum hana fékk ég tölvupóst síðasta vetur frá ungum bandaríkjamanni sem vildi vita hvort hann ætti að koma til Íslands eða fara til Argentínu að veiða urriða. Ég sagði honum að koma hingað og hann bað mig að aðstoða sig við að plana 20 daga trout bumming ferð á Íslandi. Sem og ég gerði og tók hann m.a. með mér upp á Grímstunguheiði. Bandaríkjamaðurinn veiddi vel og skemmti sér konunglega. Hann sagði mér að á Íslandi hefði hann upplifað þá allra bestu urriðaveiði á sinni annars stuttu ævi. Þetta þótti mér gaman að heyra.

Á sama tíma var að koma út fluguveiði DVD mynd sem heitir The Source – Tasmania. Ég hafði forpantað eintak og það hafði bandaríkjamaðurinn líka gert. En þegar myndin kom út hafði hún hækkað mjög í verði útaf gengi krónunnar svo að ég hætti við. Bandaríkjamaðurinn gerði það ekki og keypti sér myndina. Ég nafngreindi hann í bloggpósti á ensku sem framleiðendur myndarinnar lásu. Fyrir tilviljun mundi þau eftir nafninu hans og höfðu samband til að spyrja um veiði hérna á Íslandi. Hann sagði þeim allt af létta og gaf þeim tölvupóstfangið mitt. Þau höfðu samband þegar þau voru komin til landsins og báðu mig að veiða með sér. Svona tilviljanir komu hjólunum af stað og gerðu það að verkum að 14. september var ég staddur í Tungulæk að veiða fyrir myndavélina fyrir nýja mynd, The Source – Iceland.

Við byrjuðum vel í Tungulæk og ég fékk nánast strax 7 punda sjóbirting á þýska Snældu á Breiðunni. Veiðifélagarnir tóku sitt hvorn birtinginn og einn lax áður en við færðum okkur neðar í ána. Ég var vopnaður nokkrum mismunandi eintökum af túpu sem heitir víst Bizmo og Eygló í Veiðivon hafði prangað inn á mig. Fyrsta vaktin gekk vel þó ég muni ekki nákvæmlega hversu marga fiska við fengum. Morguninn eftir kíkti Þórarinn á okkur þegar við vorum að veiða Réttarhylinn en þá hafði Valdi fengið einn 82 cm lax þar fyrr um morguninn. Ég var að veiða með sömu aðferð og Valdi og sömu flugu. Þórarni leist ekki á blikuna og sagði mér að setja eitthvað svart undir og kasta andstreymis þarna í strenginn. Láta sökkva vel og strippa til baka. Svo fór hann en ég skipti um flugu og setti undir Bizmo með svörtum og appelsínugulum væng og gylltum búk. Fyrsta kast og lax tekur fluguna. Svona gekk þetta og ég setti í 4 laxa en landaði þremur á stuttum tíma. Kallaði ég þá í félagann og lét hann hafa stöngina mína og bauð honum að prófa. Sá setti í tvo en landaði bara einum. Þetta var einum of einfalt svo við fórum í mat.

Eftir hádegi gekk ekkert hjá mér en félagarnir mokuðu upp birtingi. Ég skipti ítrekað um flugur og reyndi bókstaflega allt en ekkert gekk. Setti ég þá undir bleikan nobbler og viti menn… í fyrsta kasti fékk ég fallega bleikju. Valdi var að veiða staðinn fyrir ofan mig og hann virtist vera að fá fisk nokkuð stöðugt svo ég spyr hvað hann sé að nota. Flæðamús var svarið svo að ég kíki í boxið. Jú ég var með eina mjög illa farna Flæðamús í boxinu og skellti henni undir.

Í 3-4 kasti er rifið hrottalega í hjá mér. Taka sem ég mun aldrei gleyma hún var svo svakaleg. Ég var með Teeny 300 línu og var að veiða djúpt á frekar hröðu strippi. Frekjan og grimmdin í tökunni var þvílík að ég hef varla sofið almennilega síðan. Takan á sér stað í miðri ánni en aðeins sekúndubrotum seinna hlunkast fiskurinn hálfur uppúr við bakkann hinum megin. Þvílík skepna! Brúnn, leginn, hnausþykkur sjóbirtingur drífur ekki allur uppúr ánni og ég kenni holdafarinu um. Þetta var eins og Amerískt holdanaut.

Ég var með þvílíkan vinnugrip í höndum, 9,5 feta stöng fyrir línu #9 og 18 punda maxima taum. Ég réði ekki neitt við neitt en hélt bara spennu á meðan fiskurinn rauk upp ána og ég elti. Svo kafaði kvikindið djúpt og ég gat ekkert annað en haldið við. Svo er skyndilega allt slakt. Ég spóla inn línuna og sé þá hvar taumurinn hafði slitnað. Ég trúði þessu ekki og gat ekkert annað en starað útí loftið og endurupplifað þessa “brútal” töku í huganum. Þetta er allt saman til á myndbandi og verður gaman að sjá þegar myndin kemur út.

Ég færði mig á næsta stað og setti Bizmo undir með skærgulum búk. Þessi túba hafði gefið mér lúsuga birtinga fyrr um

Skepnan

daginn en nú var komið fram undir kvöld. Ég var að veiða Gussann og fyrir miðjum hyl er rifið í. Ég finn að það er eitthvað þungt á hinum endanum en þó langt frá því sama þyngd og í síðasta fisk. Ég tók fast á þessum, fullviss um að það væri ekkert til að skera tauminn á þessum stað og ég nýbúinn að skipta um taum. Stuttu seinna landa ég feitasta urriðakvikindi sem ég hef séð. Fiskurinn var mældur 70 cm langur og vigtaður 5,5 kíló. Eftir mikla myndatöku og vesen fékk þessi höfðingi að fara aftur í ána til að fitna enn meir.

Við enduðum með að fá 31 fisk á tveimur dögum á þrjár stangir. Þar af voru 10 laxar, 18 sjóbirtingar, 2 bleikjur og 1 staðbundinn urriði. Stærsti fiskurinn var c.a. 12 pund, svo þessi 11 punda og svo allavega einn um 9 pund. Minnst var önnur bleikjan tæp 2 pund. Frábær túr og allir voru sáttir. Frá Tungulæk lá leið okkar Valda í afslöppunartúr í Laxá í Nesjum. Meira um það síðar.

Teaser fyrir nýja veiðimynd
Hér á landi er statt kvikmyndatökulið frá Gin clear media við tökur á nýrri fluguveiðimynd um Ísland og veiðina hér á landi. Ég hef verið svo heppinn að fá að taka þátt í þessu verkefni þeirra þar sem ég fékk að veiða með þeim í Tungulæk í Landbroti. Þau eru enn við tökur hér á landi en hafa sett saman fyrsta “tíserinn” fyrir myndina. Hér fyrir neðan má sjá þennan “tíser”.

Nýtt hefti Sportveiðiblaðsins komið út
Á dögunum kom út nýjasta hefti Sportveiðiblaðsins. Útgáfan sem slík er náttúrulega ekkert nema merkileg fyrir stangveiðimenn en þetta hefti er þó öllu sérstakara en öll hin. Þar má nefninlega finna viðtal við afar fallega stúlku sem heitir Guðrún um maríulaxinn hennar sem hún fékk í sumar. Það vill svo skemmtilega til að þessi fallega stúlka er kærasta mín og ég er að sjálfsögðu rígmontinn með hana.

En blaðið er auðvitað fleiri en ein blaðsíða og, svo ég tyggi nú á gamalli klisju, stútfullt af skemmtilegu efni. Ég fékk eintak í hendurnar í dag þó blaðið sé fyrir nokkru komið í búðir. Fjallað er um stangveiði og skotveiði á ýmsan hátt og meðal efnis er viðtal við Pétur Jóhann Sigfússon leikara sem er víst haldinn veiðidellu, veiðistaðalýsing fyrir Tungufljót, umfjöllun um Langá og fleira skemmtilegt. Skemmtilegast er þó að sjálfsögðu að lesa viðtalið við konuna mína og ekki skemmir fyrir myndin af þessari elsku sem ég tók á bakkanum í sumar. Ef vel er að gáð má sjá laxalús á einni af gervinöglum konunnar minnar. Getið þið sagt mér á nögl hvaða fingurs lúsin er? Kaupið blaðið, flettið upp myndinni og kommentið hérna.

Laxá á Refasveit 6.-9. sept 2009
Við komuna í veiðihús rukum við beint í veiðibókina og sáum okkur til mikillar skelfingar að á morgunvaktinni höfðu 8 laxar verið veiddir, allir á maðk og allir drepnir. Ég er ekki að lasta maðkveiði enda maðkveiði leyfð og maðkveiðimenn með í för. Ég er hins vegar ósáttur við að menn fóru ekki eftir settum reglum sem segja að aðeins megi taka 3 laxa á hverja stöng á dag. Áin var á mörkum þess að detta í metveiði (sem við reyndar vissum ekki þá) og ekkert nema ánægjulegt að vel væri búið að veiðast. Áin bar þó vott um ákveðið lífleysi þessa fyrstu vakt okkar og hvort það tengdist þessari mokveiði þá um morguninn eða ekki skal ósagt látið.

Hvað um það. Við sem komnir vorum, ég, pabbi og KKK félagi okkar skiptum liði. Við pabbi höfum komið áður svo ég tók KKK uppá mína arma og ætlaði að sýna honum ána. Við skutluðum kallinum í Kistu (þó ekki líkkistu) og fórum sjálfir í Flaum. Við byrjuðum á því að skríða fram á brúnina og horfa á lax við stóra grjótið neðst í staðnum. Ég fór niður en KKK var eftir uppi að sjá viðbrögð við flugum. Sú fyrsta sem fór yfir var Silver sheep #12 en í c.a. öðru kasti sem lenti nálægt laxinum fór hann sína leið. Svei mér þá ef ekki má lenda lítil fluga á línu #6 með löngum taum nálægt laxinum án þess að hann fælist… fyrr má nú vera viðkvæmnin. Við reyndum við Flaum, Efri- og Neðri Rana og Grófarhyl en ekkert gekk. Við færðum okkur á Horn og Hornbreiðu en ekkert gekk. Innan skamms hringdi kallinn og var þá kominn upp úr gilinu. Við skiptum liði uppá nýtt og KKK veiddi Göngumannahyl og Húsakvörn en við kallinn fórum í Ármót, Hrafnshyl og Nátthagahyl. Svo heyrðum við í KKK og hann hafði séð lax í Göngumannahyl sem hann var að reyna við. Við ákváðum að reyna eitthvað nýtt í Grófarhyl.

Ég óð yfir á brotinu neðst í staðnum og skreið með bakkanum og kastaði svartri Frances, hálftommu tungsten keilutúpu upp fyrir mig. Túpan sökk vel og rann meðfram klöppinni sitt hvoru megin. Ég strippaði svo inn þegar túpan nálgaðist mig í stuttum ákveðnum rykkjum. Fyrir c.a. miðjum hyl virkaði þetta og það var tekið í. Fiskur var á og landað var 4 punda hrygnu. Meira varð ekki á þessari vakt. Morguninn eftir ákvað KKK að veiða Norðurána svo við kallinn ákváðum að skipta liði, ég færi í Kistu og veiddi mig svo niður í ós en kallinn færi á Flaums/Rana svæðið. Ég varð var við lax í Kistu en hvergi annars staðar. Ég veiddi hvern einasta hyl, misvel þó eftir því hversu mikla trú ég hafði á viðkomandi stað, en án þess að verða var við neitt. Ég heyrði í kallinum sem hafði fengið fisk á maðkinn í Grófarhyl. Nú voru báðir laxarnir komnir úr þeim stað sem annars er nokkuð erfitt að veiða, allavega að mínu mati. Þar er erfitt að koma flugu fyrir laxinn, aftur að mínu mati, þar sem bakkastið er erfitt. Við fórum í mat. Kjötsúpan sem mamma sendi okkur með var frábær.

Eftir góðan lúr mættum við galvaskir til veiða á ný með von í brjósti og kjötsúpu í mallakút. Nú skyldi laxinum mokað upp. Aftur fórum við víða en ekki vildi laxinn taka, hvorki flugurnar mínar né maðka þeirra félaga. Við pabbi vorum nú að makkera stöng og KKK var víðs fjarri. Kallinn ákvað að hætta snemma og á leið upp í veiðihús bað ég hann að skilja mig eftir rétt neðan við veiðihúsið því ég ætlaði að skoða mig um. Ég fann streng sem mér leist vel á og kastaði Frances micrókeilu á hann en ekkert gekk. Ég röltið örlítið neðar þar til ég kom að fallegri breiðu sem mér leist hrikalega vel á. Einhverra hluta vegna var ég sannfærður um að það væri fiskur þarna. Ég byrjaði með micrókeiluna en fékk ekki högg. Ég minntist orða frænda míns sem sagði mér að oft hjóluðu hængar í Sun Ray á haustin þar sem þeir væru að verja sín “óðöl” fyrir hrygninguna. Hhhhhmmm ekkert ólíklegt og alveg eins gott að prófa það eins og hvað annað. Ég hugsaði með mér að fiskur sem væri kominn svona langt inn á dal hlyti að vera búinn að vera í ánni í einhvern tíma og væri svona farinn að gera sig líklegan. Þó fannst mér Sun Ray í fullri stærð vera full mikið af því góða og valdi því að nota Blue charm hnýtta á töluvert minni plasstúpu og ég hafði keypt á N1 í Nesjunum í fyrra. Fyrsta kast og smáurriðatittur lét glepjast. Ég kláraði breiðuna en varð ekki var að öðru leyti. Ég stóð neðst á breiðunni (þó á bakkanum) og virti þennan fallega stað fyrir mér. Skyndilega sá ég uppítökur þarna neðst og ég ákvað að reyna að ná mér í annan urriða, vonandi afa þess sem tók fyrst. Ég kíkti í boxið og valdi fallega litla keilutúpu, Munroes Killer. Fyrsta kast aðeins upp fyrir mig, túpan látin sökkva aðeins og svo strippað hratt. Kastið lenti alveg við bakkann hinum megin. Flugan rýkur af stað og skyndilega sé ég boðaföllin á eftir flugunni. Línan var á enda og ég þurfti að teyma fluguna örlítið lengra þar til laxinn tók loksins alveg við bakkann mín megin. Æðisleg taka en eftir góða baráttu losnaði úr laxinum í löndun. Í stað þess að hala inn og hvíla mig eitthvað kastaði ég í hugsunarleysi strax aftur í átt að laxinum sem synti aftur að bakkanum hinum megin. Ekkert!! Ég kastaði aftur og skyndilega sé ég boðaföllin koma aftur og í miðjum hyl er flugan negld af miklum krafti. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Eftir snarpa baráttu landaði ég fallegri 4 punda hrygnu og fann tvíkrækjuna lengst ofan í koki. Frábær endir á annars tíðindalitlum og erfiðum degi. Staðurinn var ómerktur en fékk nafnið Stjánabreiða meðal okkar félaga.

Þetta reyndist eini laxinn á þessari vakt og samtals voru komnir þrír laxar á land, tveir á fluguna og einn á maðkinn.

Kallinn með 'ann í Kistunni

Morguninn eftir byrjuðum við allir saman í Kistu og veiddum bara á eina stöng. Restin af ánni yrði allavega vel hvíld á meðan og við gætum allir verið saman ef það hlypi nú á snærið hjá okkur. Kallinn setti strax í lax á maðk í Kistunni og það virkilega fallegan fisk. Hængur sem var 69 cm, hnausþykkur og silfraður lét hafa vel fyrir sér. Við reyndum við Gljúfrabúa áður en við skiptum liði aftur. KKK fór í Flaums/Rana svæðið en við kallinn fórum í Göngumannahyl. Við reyndum við lax sem við sáum í Göngumannahyl en ekkert gekk svo við ákváðum að ég skyldi sýna kallinum Stjánabreiðu. Við fórum eftir kúnstarinnar reglum, flugan fékk að fara fyrstu umferð (þannig fæ ég alltaf að byrja). Ekki leit hann við flugunni svo að komið var að maðkakallinum að reyna. Flotholt, sakka og loks maðkur rann meðfram bakkanum hinum megin. Ég skal alveg viðurkenna það að mér finnst mjög spennandi að fylgjast með maðkveiðiköllum og þá sérstaklega stangartoppinum hjá þeim því þegar maður sér hann kippast til þá veit maður að það er komið “samband”. Stuttu síðar fór stangartoppurinn einmitt að kippast til og fiskur var á. Nú var orðið 3-2 fyrir maðkinum!!

Flottur fiskur. Þessi reyndist vera fiskurinn sem markaði nýtt met í Laxá á Refasveit

Klukkan 13:00 renndi KKK í hlaðið á þessu fallega veiðihúsi og byrjar á því að fara í skottið á bílnum. Það vissi bara á eitt og úr því tekur hann fallegan 4 punda, silfraðan lax í plasti. F**CK, nú var orðið 4-2 fyrir maðkinum. Ég þurfti að fara að herða mig en þó gætti mikillar ánægju með það að allir voru komnir með fisk. Þess skal þó getið að allur þessi metingur með maðk og flugu er bara í gríni og ekki bar á neinu slíku milli okkar félaga. Ég nýt þess að reyna að pranga inná þessa kalla mínum trúarbrögðum og þeir vonandi taka því bara eins og hverju öðru gríni. Ég gerði heiðarlega tilraun til að veiða á maðk í þessari ferð en eftir tvö misheppnuð köst sem bæði enduðu í bakkanum hinum megin ákvað ég að gefast upp í því. Ég þurfti meira að segja að slíta í seinna skiptið og tókst því ekki að koma maðki í ána.

Morgunvaktin gaf okkur 3 fiska og útlitið var gott. Afgangurinn af kjötsúpunni bragðaðist jafnvel betur en deginum áður en lúrinn varð ekki í þetta sinn því ég þurfti að keyra kallinn útá Blönduós að kaupa fleiri sökkur!!! Jæja svona er það bara. Á seinni vaktinni eyddum við alltof miklum tíma í fiska sem voru ekki að taka. Það er alltaf sama sagan með okkur, við festumst alltaf í fiskum sem við sjáum en vilja ekki taka. Seinni vaktin gaf okkur ekkert nema holla útiveru, ferskt loft og góðan félagsskap. En að allri væmni sleppt þá var bara skítkalt og leiðindaveður og við hættum snemma.

Síðasta morguninn var ég einn á stöng og byrjaði í Göngumannahyl á meðan þeir gömlu fóru í Kistuna. Ég fór óvarlega

Greinarhöfundur að reyna að gera laxinn stærri en hann var!!

og styggði fisk í hylnum svo ég rölti niður í Snaga sem er mjög fallegur veiðistaður rétt ofan við þjóðvegsbrú. Eftir að hafa veitt hann stóð ég frammi fyrir ákvörðun. Ég vissi að gömlu kallarnir kæmu niður í Flaums/Rana svæðið sem er þarna rétt fyrir neðan brú og ég vissi að ég þyrfti að koma mér upp úr gilinu. Spurningin var hvort ég ætti að fara upp og svo aftur niður og veiða Flaums/Rana svæðið og fá þá svo til að skutla mér að sækja bílinn eða hvort ég ætti að rölta tilbaka að sækja bílinn. Þegar ég var kominn upp leist mér betur á að halda áfram að veiða. Ég var alltof vel klæddur og sá ekki útum gleraugun fyrir móðu. Ég var líka að spræna á mig. Ég fór yfir girðingar og skreið niður að hylnum en stoppaði í miðri brekku. Þarna var ég staddur hinum megin við bílastæðið og var að koma að staðnum á annan hátt en ég hafði nokkurn tímann áður gert. Þarna er brött grasbrekka og hár klettaveggur á bakkanum hinum megin. Grasið var mjög blautt og ég byrjaði á því að rífa mig úr tveimur jökkum. Ég var á hnjánum því ef ég hefði staðið væri allt búið. Ég var ennþá að míga á mig og ég varð því að láta vaða þarna í brekkunni á hnjánum. Ég skora á ykkur alla sem þetta lesið (karlkyns) að spræna á hnjánum með vöðlurnar á hælunum…. Ekki gott!!

Ég varð að gefa mér góða stund að kólna niður þarna áður en ég gæti sett gleraugun upp aftur svo að ég ákvað að skipta um flugu og gera mig kláran. Ég lengdi tauminn í c.a. 13-14 fet og setti undir hálftommu svarta frances, tungsten keilutúpu. Ég vissi nákvæmlega hvar fiskurinn var og mig grunaði að ég þyrfti að koma flugunni niður til hans. Ég lagðist í grasið og renndi mér á bakinu niður hlíðina, niður í grjótið á bakkanum. Þar kraup ég og byrjaði að kasta. Eftir að hafa fest fluguna í bakkanum fyrir aftan mig nokkrum sinnum skreið ég aðeins ofar til að koma mér í betri stöðu. Ég náði góðu kasti og túpan lenti aðeins uppá klöppinni 45° og c.a. 8 – 10 metrum fyrir neðan mig. Strengurinn í miðjum hyl tók línuna en svo finn ég að það er tekið í. Tekið í svona með rykkjum og ég lyfti stönginni varlega og finn að fiskurinn er á. Tilfinningin var ótrúleg og ég fann adrenalínið streyma um æðarnar á mér. YES, YES, YES… kallaði ég upp yfir mig af gleði. Ég var ótrúlega ánægður með að vera búinn að setja í þennan fisk og taka var svo skemmtileg. Ég var búinn að hafa mikið fyrir þessum fiski bæði þarna um morguninn og deginum áður. Ég var þreyttur og vonlítill þegar fiskurinn tók en gleðin var svo mikil og tilfinningin svo æðisgengin. Ég vona að ég gleymi þessu aldrei því þetta er það sem ég elska við að veiða. Ég hef verið spurður að því hvernig ég nenni að standa útí á og berja hana klukkustundum saman og fá kannski bara einn fisk. Þarna var svarið. Þessi frábæra tilfinning sem kemur yfir mig þegar mér tekst loksins að setja í fisk eftir að hafa haft svona mikið fyrir honum. Mér var ekki kalt, ekki heitt, ekki blautur, ekki þreyttur. Ekkert nema fullkomin ró. Það var töggur í þessum fisk og ég var lengi með hann en með snilldar tímasetningu komu þeir gömlu (eða öllu heldur þeir eldri) keyrandi þarna að alveg í blálokin. Nógu tímanlega til að smella af mér mynd með fiskinn áður en ég sleppti honum. Frábær endir á frábærum túr.

Seinna fréttum við af því að við áttum þann lax sem markaði nýtt met í Laxá á Refasveit. Allt um það mál á

Takið eftir þykktarmuninum

VötnogVeiði.is

Þessi túr skilur eftir sig tvo skemmtilega umræðupunkta. Í fyrsta lagi, getur verið að sami fiskur hafi tekið túpuna strax aftur eftir að ég var búinn að missa hann? Eða var þetta kannski bara annar fiskur og algjör tilviljun að hann tók á nákvæmlega sama hátt og sá sem ég missti? Í öðru lagi þá fengum við fisk sem var “aðeins” 69 cm að lengd en þegar hann kom að landi vorum við vissir um að hann væri stærri. Það er svo sem ekkert nýtt að veiðimenn vilja strax ljúga til um stærð á fiskum en þessi var verulega þykkur og trjónan/munnsvæðið dálítið svona voldugt einhvern veginn. Þegar við svo bárum saman við fiska sem voru 64 cm á lengd sáum við muninn greinilega. Getur verið að þessi þykki sé tveggja ára lax sem er bara svona stuttur? Eða er þetta bara eins og með mannfólkið, öll erum við misbreið eftir stærð? Þetta segir allavega eitthvað en þessi fiskur vigtaði þó ekki nema 3 kíló á gömlum pundmæli. Tja.. læt allavega mynd fylgja með.

Haffjarðará 2.-4. sept 2009
Þá er komið að því að ég hef frá einhverju að segja hérna á þessari síðu minni… loksins. Loksins komst ég sjálfur í veiðitúr og það langþráðan veiðitúr. Í fyrra fór ég í fyrsta skipti í Haffjarðará sælla minninga og hef mörgum sagt frá þeim túr og því sem ég lærði þar. Þá var ég yfirspenntur og illa fyrir kallaður nánast allan tímann og ekkert gekk. Í ár skyldi ég ekki láta það gerast!!

Í fyrra drógum við svæði 2 sem er miðsvæðið og kannski það svæði sem minnst hefur verið að gefa. Í ár drógum við aftur það svæði. Áin var hrikalega vatnslítil, það var kalt og rok. Við byrjuðum í Neðri ármótum og það var sama sagan í ár og í fyrra, fiskur að stökkva um allt en tók ekkert sem fyrir hann var lagt. Geiri sem var á hinni stönginni veiddi flóann á meðan ég og kallinn veiddum strenginn. Geiri ákvað að veiða sig niður í Kvörn en við keyrðum þangað niður eftir. Á leiðinni sjáum við hvar Geiri er að sleppa fisk í stað númer 25. Sá reyndist vera 70 cm hrygna sem tók hálftommu rauða Frances. Þessi staður þar sem hann fékk fiskinn er lítill en geymir mikið af fisk í svona vatni eins og var þarna. Þarna eru flúðir og smáfossar sem fiskurinn þarf að fara upp og við landið austan megin er stór steinn útí ánni rétt neðan við flúð. Fyrir framan steinninn og í raun allt í kringum hann er djúpt og þar voru ábyggilega c.a. 10 fiskar að bíða rétta tækifærisins að leggja á flúðirnar og fossana. Geiri hafði læðst aftan að steininum og komið flugunni upp í strauminn.

Við reyndum Kvörnina en án teljandi árangurs. Tókum Nebba, Dick’s pool og Urð en urðum ekki varir. Þegar klukkan

Sá fyrsti og sá minnsti

sló átta fórum við í hús í sauna og þriggja rétta dinner. Samtals fengust 7 laxar á vaktinni. Morguninn eftir áttum við svæði 3 því það var ákveðið að breyta skiptingunni frá því í fyrra. Við byrjuðum í Ófæru og byrjuðum á Hitch, skiptum í litlar flugur og spændum boxin yfir þennan stað. Á meðan þessu stóð sáum við ítrekað laxa stökkva neðar en við vorum að veiða og ákváðum að færa okkur þangað. Þar er mjög lítill straumur og ég ákvað að byrja með Sun Ray og renna hratt yfir. Geiri fór neðar í Broken Bank, eða bankahrum eins og við köllum hann. Laxinn leit ekki við Sun Rayinum svo við ákváðum að fara örlítið dýpra með kvarttommu þýskri Snældu. Ég kastaði örlítið upp fyrir mig og leyfði flugunni að sökkva. Dró fluguna svo inn í stuttum snöggum rykkjum en þó ekkert rosalega hratt. Fljótlega er togað á móti og eftir snarpa viðureign landaði ég minnsta laxi sem ég hef fengið. 55 cm hrygna fékk að fara aftur.

Við fórum í Nesenda og skiptum liði. Geiri og Guðbjörg fóru í neðri hlutann en við kallinn í efri. Sáum mikið af fiski stökkva en ekki vildi hann taka. Í fyrra tók ég þrjá í beit þarna úr efri hlutanum og Geiri að minnsta kosti einn úr neðri. Það gekk ekkert núna. Í síðasta rennslinu renndi ég yfir staðinn með hálftommu svörtum Frances og kláraði bæði efri og neðri hlutann. Neðarlega í neðri hlutanum kastaði ég flugunni örlítið upp fyrir mig og leyfði að sökkva duglega. Dró svo inn í þessum stuttu rykkjum sem virkuðu svo vel í Ófæru. Það er tekið í og fiskur er á. Ég spólaði inn slakann en komst ekki mikið lengra því fiskurinn lak af. Við færðum okkur neðar.

Þessi slapp!!

Í Hellisfljóti byrjuðum við á litlum flugum og það var sama sagan, fiskur að stökkva um allt en tók ekki. Ég var alveg á því að við þyrftum að koma flugunni niður til hans en var ekki á því að fara í sökk- eða sökkendalínur svo að lítil tungsten Frances túpa varð fyrir valinu. Kastaði henni upp í strauminn og lét hana leka niður. Dró inn í stuttum, ákveðnum rykkjum og svo sá ég hvar fiskur rennir sér upp og tekur fluguna. Hann bankar höfðinu mikið og ef eitthvað er að marka það sem ég lærði í “Svona tekur laxinn” þá þýðir það að fiskur er illa tekinn. Ég segi við kallinn voða spekingslegur “þessi er illa tekinn”. Þarna er mikið af grjóti og mikið slý og ég tók fast á fisknum og hélt stönginni hátt uppi (eins og maður á að gera samkvæmt myndinni). Eftir c.a. 3 – 5 mín grefur fiskurinn trýnið í slý og allt verður slakt. Jæja maður lærir af mistökunum og kannski hefði ég átt að vera grófari í að halda trýninu frá botninum. Yfirleitt nota ég ekki þríkrækjur en einhverra hluta vegna var ég með slíka þarna og eflaust hafa einhverjar krækjurnar flækst í slýinu og losað fluguna. Hvað um það, það þýðir ekkert að velta sér uppúr þessu og við köllum þetta bara LDR (Long Distance Release).

Ekki gerðist nú fleira markvert þarna á þessari vakt og við drógum okkur í hlé. Eftir að hafa sporðrennt þriggja rétta hádegisverði og nokkrum kaffibollum var aftur kominn tími á svæði 2. Morgunvaktin hafði gefið 8 laxa og heildartalan í hollinu komin í 15 laxa. Geiri og Guðbjörg byrjuðu í Kvörn en við pabbi tókum Neðri ármót og stað númer 25. Ég lét reyna á steininn sem Geiri hafði fengið fisk á og einn annar veiðimaður líka. Á þessum nótum langar mig að blanda mér í smá umræðu. Í sumar birtist frétt á Vötn og Veiði um að menn höfðu veitt andstreymis í Hrútafjarðará í roki. Upp spunnust umræður um þetta á veiði.is þar sem einhver talaði um að alvöru veiðimenn gerðu ekki svona. Rökin voru þau að menn væru þá bara að húkka fisk. Mín skoðun er sú að þetta er algjört kjaftæði!! Ég hef milljón sinnum horft á fiska hreinlega færa sig þegar túpan eða flugan kemur rekandi niður ána. Fyrir þennan túr hafði ég fengið tvo laxa með því að kasta lítilli Frances keilutúpu andstreymis og í báðum tilvikum hafði laxinn tekið fluguna. Í fyrra skiptið horfði ég á endann á flugulínunni og þegar ég sá hana kippast til duglega lyfti ég stönginni og fiskurinn var á. Flugan var klesst í tunguna á fisknum og ekki fór á milli mála að hann tók fluguna. Í seinna skiptið sá ég fluguna allan tímann og horfði á laxinn renna sér upp úr djúpinu og negla fluguna. Horfði svo á hann snúa sér við með fluguna í kjaftinum og lyfti þá stönginni. Í mínum huga snúa alvöru veiðimenn erfiðum aðstæðum sér í vil og ná fiskum þegar aðrir ná þeim ekki með hugmyndaauðgi og tilraunastarfsemi. Ég nota bara flugu, flugulínu, flugustöng og fluguhjól alveg eins og hinir. Ég leik mér ekki að því að húkka. Ég veiði silung andstreymis og það gengur oft vel og því ætti ég ekki að gera það sama með lax þegar annars er ekki hægt eða mjög erfitt að koma fyrir hann flugu á “hefðbundinn hátt”? Ef þetta væri málið væru þá ekki alveg jafn miklar líkur á því að húkka með því að strippa flugur upp í gegnum svona hylji? Þá kemur flugan aftan að fiskum og þeir hafa ekki sama séns á að bregðast við!!

Hvað um það. Þarna við steininn er erfitt að komast að að ofan en ég byrjaði á að reyna það. Kallinn lagði sig á bakkanum á meðan ég fékk að þaulreyna við steininn. Byrjaði á að hitcha hvítfissið og svo í kringum steininn. Ég var töluvert fyrir ofan og á hnjánum því annars ber maður yfir staðinn eins og viti. Því næst setti ég silver sheep #12 á tvíkrækju en ekki vildi fiskurinn koma upp að sækja þetta. Setti ég þá Tungsten keilutúpu og kastaði að ofan. Það gekk illa því þarna þarf að koma flugunni á milli steina og ég var ekki með réttu stöngina í verkið. Fór ég þá í land, skipti um stöng og kom aftan að steininum. Með sömu tungsten túpunni kastaði ég upp í strauminn og lét fluguna koma niður. Þá er rifið hressilega í og fiskurinn er á. Med det samme stekkur þessi líka boltahængur allur uppúr og ég sá voldugan krókinn í neðri skolti. Við lendinguna losnaði úr honum. Svona fór um sjóferð þá.

Númer 2 og jafn stór og sá fyrsti

Við færðum okkur niður í Kvörn og kallinn byrjaði með smáflugunum. Við skiptumst á að kasta mismunandi stærð af flugum og þegar ekkert gekk ákvað ég að reyna andstreymisaðferðina aftur. Setti minnstu frances  microkeilutúpuna mína á og kastaði upp fyrir smá rennu sem er á milli steina. Þá er rifið kröftulega í og fiskur á. Sá óð um allt þarna og flækti sig á bakvið steina og þetta var meiriháttar hafarí að koma honum á land. Reyndist krækjan vera á kafi í efri skolti og ekki fór á milli mála að hann hafði tekið fluguna. Reyndar fór það ekkert á milli mála strax í byrjun því takan var svo kröftug. 55 cm fiskur fékk að fara aftur. Þarna voru komnir 3 laxar í sumar sem höfðu tekið svona andstreymis. Við fórum í hús spenntir fyrir síðustu vaktinni sem við áttum á svæði 1. Samtals voru komnir 20 laxar á land í hollinu.

Sá stærsti í ferðinni og í sumar

Síðasta vaktin var runnin upp og við áttum svæði 1. Við ákváðum að Geiri tæki gömlu brú og Gretti en við færum í Sauðhyl. Síðan myndum við skipta eftir 2 tíma því aðeins er veitt í 4 tíma á síðustu vakt. Fall er fararheill eins og sagt er en sá málsháttur var mér ekki ofarlega í huga þegar ég flaug á hausinn útí miðri á rétt áður en ég mundaði hitchið í Sauðhyl. Með hjartslátt í hné og framhandlegg eftir fallið hitchaði ég yfir en án árangurs. Pabbi fór umferð með Green butt #14 og ég með Frances #16. Kallinn stækkaði og fór yfir með Green highlander #10 og þegar ekkert af þessu virkaði var kominn tími til að koma þessu niður. Við settum undir litla Tungsten Frances túpu og í fyrsta kasti var hann á. Eftir skemmtilega baráttu landaði ég 76 cm hrygnu sem fékk að sjálfsögðu að fara aftur. Nú var komið að kallinum að taka fisk og hann fór aðra umferð með sömu flugu en ekkert gekk. Ég tók við og planið var að færa sig niður á neðri hlutann og veiða hann síðasta hálftímann. Í þriðja kasti tekur fiskur og mér finnst eitthvað skrýtið við hann. Fyrst hélt ég að hann væri illa tekinn en í löndun sá ég

Hnúðlax úr Sauðhyl. Viðbjóður!!

hvers kyns var. Ég hafði fengið hnúðlax sem ljótur spriklaði þarna á eyrinni og lét öllum illum látum. Þessi fengi ekki frelsið á ný. Eftir að hafa rotað hann og blóðgað hélt hann áfram að sprikla og svilin sprautuðust úr honum. Þvílíkur viðbjóður. Kallinn fór síðustu umferð yfir og setti í fisk en missti fljótlega. Það var kominn tími á að færa sig ofar og skipta við Geira.

Geiri hafði fengið fisk á Sun Ray í Gömlu brú og við byrjuðum þar. Við ákváðum að eyða ekki miklum tíma þarna og veiða bara vel yfir strenginn með litlu Tungsten Frances túpunni. Fljótlega setti ég í fisk en eftir stutta baráttu lak úr honum. Kallinn tók við og fær fljótlega töku en meira var það ekki þarna. Þá vorum við búnir að landa 2 og missa 2. Við fórum í Gretti og aftur byrjaði ég. Það lítur út fyrir að ég sé óþolandi frekur á stöngina en það rétta í málinu er að kallinn heimtar að ég byrji á öllum stöðum og geti þannig gefið góð ráð í sambandi við botninn og ýmislegt svoleiðis. Í þriðja kasti er tekið svakalega í túpuna og stöngin

Ef og hefði!! Þessi HEFÐI verið minn stærsti EF ég hefði ekki misst hann.

kengbognar. Það var eitthvað þungt á hinum endanum og eitthvað þyngra en ég hef nokkurn tímann haft á endanum. Fiskurinn rýkur niður í rennu sem er þarna og haggast ekki þaðan í góða stund. Ég sá fiskinn vel og sá að hann var stór, á að giska kannski 16-17 pund. Ég gat ekkert stuggað við honum sama hvað ég reyndi en reglulega tók hann rokur niður ána en fór svo alltaf upp í rennuna aftur. Eftir c.a. 10 mínútur snýr hann sér við og allt er slakt. Djöfull var ég svekktur!!! Ég settist niður að róa mig og kallinn tók við. Hann fór duglega yfir en án árangurs. Við héldum áfram en ekkert gekk. Í lokin setti ég Sun Ray undir og 5 mínútur í tólf neglir fallegur 59 cm smálax fluguna. Góður endir á annars ágætum túr. Enduðum í að landa 5 löxum en missa 6. Hollið endaði með 27 laxa sem er töluverð fækkun frá því í fyrra en í fullu samræmi við veiðitölur þessa árs, kulda og vatnsleysi.

Þvílíkir fiskar!!
Síðasta vika er búin að vera rosaleg hvað veiði varðar. Byrjum á laugardagskvöldið fyrir rúmri viku. Kom í hús í Minnivallalæk seint og það var ákveðið að geyma veiði þann daginn. Svo er ég staddur bakvið hús í símanum þegar ég sé eitthvað stórt snúa sér í litla strengnum sem rennur við húsbakkann þar sem Klofalækur og Skarðslækur koma saman og mynda Minnivallalæk. Ég góni á staðinn og aftur ólgar yfirborðið og svo aftur. Ég lít við og þar stendur bandarísk veiðikona í glugganum og gapir. Næsta sem ég veit er hún mætt út í vöðlum og með stöng í hönd. Hún kastar nokkrum vel völdum þurrflugum á skepnuna en skepnan er búin að stilla sig inn á eitthvað ákveðið og lítur ekki við eftirlíkingum.

Ofar í strengnum er eitthvað minna að éta og því alveg eins gott að reyna að plata “unglinginn” fyrst öldungurinn vildi ekki taka. Sama sagan og eftir nokkur köst í trén þarna bakvið voru fiskarnir hættir að láta sjá sig. Ég kem færandi hendi með lítinn hvítan nobbler og segi henni að grýta honum eins langt upp lækinn og hún nær. “When the fly hits the water start stripping back like a crazy person” segi ég og hún svarar. “OK I’ll try”. Fyrsta kast fer í klessu og hún mundar stöngina í annað kast. Það fer svona fallega og lendir vel ofan við staðinn þar sem minni fiskurinn var að sýna sig. Eftir nokkur “stripp” sé ég hvar ólga myndast fyrir aftan fluguna og ég hljóða upp yfir mig “STRIP FASTER” og í beinu framhaldi en þó örlítið hærra “KEEP STRIPPING!!!!!”. Rétt áður en öll flugulínan hafði farið inn um efsta hringinn á stönginni er togað á móti og einn af unglingum Minnivallalækjar er að verki. Góð byrjun.

Daginn eftir tókst okkur að ná einum af höfðingjunum á litla flugu sem heitir Chromie og er mýpúpa með tungsten haus. Sá var sirka fyrir miðja breiðu í Stöðvarhyl og var snyrtilega tekinn í efri “vörina”. Fleiri fiskar fengust í Minnivallalæk, flestir á litlar straumflugur sem voru strippaðar hratt niður ána, þ.e. kastað andstreymis og strippað niður. Frá Minnivallalæk lá leiðin í Tungulæk og þar sannaðist svo um munaði hversu miklu máli veðrið skiptir í veiði.

Við komum á staðinn í logni, sól og miklu vatni. Það var heitt og fiskurinn var ekki að taka. Fyrsta vaktin var róleg og að ég held aðeins tveir fiskar komu á land. Morguninn eftir var vaknað snemma til að ná kuldanum um morguninn. Það var logn, sól, heitt, mikið vatn og mikið af flugu. Ég var pirraður, sveittur og sá ekki út um polaroid gleraugun fyrir móðu. Ég fékk einn lítinn birting á hlunka stöng fyrir línu #8 en var stöðugt að flækja línuna í háu grasinu. Helv.. flugurnar komust undir gleraugun og ekkert gekk upp. Þetta var einn af þessum morgnum þar sem best er fyrir mig að fara bara aftur að sofa og láta aðra um að veiða. Ég er hrikalegur skaphundur. Svo sáum við lax og skyndilega er allur pirringur farinn. Ekki nóg með það heldur var laxinn að elta flugurnar og bara spurning um að koma þeim rétt fyrir hann. Það tókst að lokum þegar þýsk snælda rann rétt fram hjá honum og bandarísk veiðikona horfði á hann snúa við og sækja túpuna sem rann framhjá. Fyrsti lax hennar var 57 cm löng hrygna og nýr aðdáandi íslenska laxinns var fæddur.

Hinar stangirnar fengu líka laxa og allir voru kátir. Þá um kvöldið fékk ég svakalegustu töku sem ég hef nokkurn tímann

Fallegur urriði 58 cm langur

upplifað þegar ég strippaði Collie dog afbrigði á tommu plasttúpu eftir yfirborðinu á ómerktum stað. Flugan kom fyrir horn, ef svo má að orði komast, og uppúr djúpinu stekkur skepna og hamrar fluguna. Ég er loksins núna farinn að finna hjartsláttinn aftur á eðlilegum stað en ekki niðri við jafnaldra minn, mér brá svo mikið. Fiskurinn náðist á land og reyndist spikfeitur 58 cm urriði. Þetta kvöld fengust svo einhverjir 2-3 birtingar í viðbót.

Morguninn eftir fengum við loksins kaldara loft, ský og vind. Súddi leiðsögumaður minntist á að núna myndi eitthvað gerast. Bandarískar veiðikonur dreifðu sér á nokkra vel valda staði neðarlega í ánni og í einu af fyrstu köstunum setur ein þeirra í fisk en missir um leið. Bleikir nobblerar voru á öllum stöngum og þótti það vel við hæfi. Eftir stutta stund heyri ég

Svakalegur birtingur. 85 cm langur. Bandarísk veiðikona fékk hann.

kallað, “I got one, bring the net”. Við nánari athugun kom í ljós að stærðarinnar skepna hafði hamrað einn bleika nobblerinn svo um munaði. Skepnan óð um allt og reif út línu langt niður á undirlínu. Eftir harða baráttu var skepnunni landað. Þvílík styrtla á þessu kvikindi!! Þetta reyndist 85 cm sjóbirtingshængur, spikfeitur og áætlaður ekki undir 8 kílóum. Sú sem fékk fiskinn treysti sér ekki í að lyfta fiskinum fyrir myndavélina svo það kom í minn hlut.

Þennan morgun fengum við 5 laxa og eitthvað af birtingum líka. Seinni partinn bættust við eitthvað af birtingum, þar af einn stórglæsilegur 74 cm fiskur af Breiðunni. Teeny 300 línan kom að góðum notum í þessu mikla vatni og það er deginum ljósara að ég ætla að fjárfesta í slíkum grip. Síðasta morguninn náðum við svo 3 löxum til viðbótar og einum flottum birting. Við gerðum fínan túr í Tungulæk og allir voru sáttir. Þessar bandarísku veiðikonur eru nú orðnar “hooked” á laxveiði. Þær komu hingað til lands með litlu tréháfana sína og ég var fljótur að segja þeim að skilja þá bara eftir enda aðeins örfáir af þeim fiskum sem við fengum komist í þá háfa. Þetta hljómar kannski hrokafullt að segja en þetta var bara blákaldur veruleikinn í þessari ferð. Stærsti birtingurinn var 85 cm langur, stærsti urriðinn 66 cm langur og stærsti laxinn 80 cm langur. Allir fengu þessir fiskar frelsið aftur að undanskildum einum kíló birting sem þótti Black sheep túpan einum of girnileg.

Á leið okkar austur og norður komum við við í Breiðdalnum og kíktum í kaffi. Við sátum í mestu makindum þegar inn

Heimir gæd með skepnuna. 97 cm nýgenginn hængur úr Breiðdalnum

kemur einn gædinn þar og biður um myndavél því einn kúnninn hafði fengið stóran fisk. Við rúlluðum með niður að á og fengum að berja 97 cm nýgenginn hæng augum og mynda. Þvílík skepna og ef samferðamenn mínir voru ekki ástfangnir af veiðinni á Íslandi þá gerði þetta útslagið. Daginn eftir fékkst 108 cm fiskur í Breiðdalnum.

Við héldum áfram og gistum á Jöklusvæðinu þá um nóttina og veiddum Laxá í Jökulsárhlíð morguninn eftir. Þar náðum við einni bleikju og bandarísk veiðikona fékk það sem hún kallaði “Icelandic grand slam” eða lax, urriða, sjóbirting og bleikju. Við sáum lax í Laxárfossi sem ekki fékkst til að taka. Á morgun veiðum við í Grafará. Eitthvað af myndum komnar, fleiri á leiðinni!!

Guðrún og maríulaxinn
Jæja þá er konan loksins komin í klúbb fárra útvaldra. Eftir margar misheppnaðar tilraunir að landa laxi tókst það að lokum nú um daginn. Ekki nóg með það heldur fékk hún tvo sama daginn þessi elska. Nú er hún algjörlega orðin “hooked” og ég sé það fyrir mér að maður verði blankur í framtíðinni því hún fékk Maríulaxinn í Hrútafjarðará.Hvað um það, fyrstu tveir laxarnir hennar komnir á land og það eftir að hafa misst fimm laxa til þessa.

Fyrsti laxinn reyndist 65 cm langur hængur, grálúsugur sem lét öllum illum látum. Eins og menn vita er erfitt að leiðbeina fólki með alla hluti í löndun og mér gleymdist að tjá henni að passa sig á sveifinni þegar laxinn tekur rokur. Guðrún er með gervineglur og það nokkuð langar og ég veinaði af hlátri þegar hún öskraði yfir sig að neglurnar væru að brotna þegar nýgenginn hængurinn tók sínar kröftugu rokur. En eftir að hafa tekið fast á fisknum tókst að koma honum á land. Sá tók kvarttommu rauða frances á strippinu. Þegar laxinn var kominn á land var kominn tími til að gera eins og alltaf er gert með maríulaxa (svo framarlega sem það eru ekki tveggja ára laxar). Veiðiuggin skyldi bitinn af. Ég plokkaði lýsnar af til að gera þetta aðeins lystugra fyrir þessa elsku og hún lét vaða. Ég tók allt upp á video og má sjá það hér að neðan.

Hún bætti svo um betur og náði öðrum lax á land sama dag og það á Black sheep #10 á hröðu strippi. Sá negldi fluguna með þvílíku offorsi að línan vafðist um háls Guðrúnar og ég varð að hlaupa til og losa það áður en hann tæki rokuna. Sá komst á land og reyndist 62 cm hrygna. Frábær skemmtun. Hendi inn myndum.

Smá fréttir
Ég hef nú ekki verið að veiða mikið sjálfur undanfarið og því haft frá litlu að segja hér. En það fer nú vonandi að breytast sem fyrst. Ég tók nokkur köst í Minnivallalæk í gær og fékk þrjá urriða sem allir voru um pundið. Neðst í Hólmakvíslum sá ég nokkur kríli í uppítökum og settist á bakkann að horfa á. Ég var ekkert að stressa mig á því að velja akkúrat það sem þeir voru að taka heldur ákvað að gera smá tilraun. Hnýtti ég þá á endann þurrflugu sem heitir Madam X og er svona attractor þurrfluga, stór og mikil. Ég ætlaði að sjá hvernig viðbrögðin væru. Ég sat c.a. samsíða efsta fisk sem var að éta á yfirborðinu og var því að kasta rétt upp fyrir mig og ætlaði svo að reyna að kasta bara niður og vinna út línu til að losna við “drag”. Flugan rann yfir fyrsta fisk sem ekki tók, næsti tók ekki heldur og flugan hélt áfram að renna niður. Þá klikkaði ég eitthvað í línustjórnun og flugan fór að skauta á yfirborðinu ekkert ósvipað hitch túpu eða hreinlega bara Muddler minnow. Búmm!! kom einn uppúr og hamraði fluguna á yfirborðinu.

Næsta kast var aðeins niður á við og ég lék mér að því að rykkja snögglega í línuna stuttum rykkjum. Þetta gerði góða hluti og ég sá röstina elta fluguna. Því miður varð ég að rífa fluguna uppúr vatninu því hún stefndi á slýbakka sem var við lappirnar á mér. Þvílík skemmtun. Næsta kast og í þetta sinn sleppti ég að rykkja í línuna og leyfði flugunni bara að skauta á yfirborðinu. Í miðjum strengnum kom einn uppúr og hamraði hana.

Færði mig í Stöðvarhyl svona rétt fyrir lokun og kom ofan að. Byrjaði við hólmana fyrir ofan og kastaði ólífugrænum nobbler á undirgrafinn bakka sem er þarna austan megin. Kastaði flugunni upp og strippaði hana niður með bakkanum. Sá þá hvar eitthvað eltir og neglir. Sá reyndist, eins og hinir, um pundið. Færði mig þá niður á breiðuna fyrir neðan og græjaði tvær púpur á tauminn. Fyrsta kast og ég sá hvorki tökuvarann né línuna fyrir birtunni á vatninu. Setti risastóran tökuvara á en það hjálpaði ekki í norðanrokinu niður ána og ég sá hvort eð er ekki línuna. Pakkaði saman og fór í háttinn snemma.

En mér bárust góðar fréttir úr Grafará við Hofsós um daginn. Tveir veiðimenn veiddu á mánudag og fengu þeir samtals 8 bleikjur á bilinu 1,5 – 3,5 pund og sáu tvo laxa til viðbótar. Gaman að heyra að það er kominn lax í ána og er hann ekkert nema kærkomin viðbót við bleikjuna og urriðann í ánni. Mér finnst það þó skrýtið að enn hefur enginn urriði komið á land í ár. Enn er nóg af lausum dögum í Grafará og áin lítið verið stunduð í sumar. Hægt er að sjá upplýsingar um lausa daga á www.grafara.icelandangling.com

Fréttir úr Grafará
Jæja það er nú orðið fullangt síðan síðast og kannski ekki að furða þar sem ég hef mikið verið úti á landi og þessi helv… 3G pungur virkar ekki sem skyldi. Ég er orðinn vel bakaður í framan með gleraugnafar og hvítt enni. Þvílíka

Flott bleikja úr Grafará - Mynd Friðgeir Valdemarsson

veðurblíðan sem búin er að vera er með ólíkindum. Ég er búinn að upplifa frábærar stundir á bökkum Minnivallalækjar og ýmislegt alveg furðulegt líka. Lá uppi á hól og fylgdist með þegar vorflugupúpu var kastað á flottan fisk neðst í læknum. Frábært að sjá þegar hann renndi sér c.a. meter til vinstri og hamraði púpuna. Æðislegt að grípa um sporðinn á svona kvikindi sem sennilega losaði fimm pundin.

Mér leiðist að viðurkenna það að laxveiðin á hug minn allan þessa dagana og ég tel niður dagana þangað til næsti túr rennur upp. Það er svo sem ekki túr af verri endanum en ég deili stöng í Haffjarðará í tvo daga í byrjun september. Hvað um það, þangað til verður maður að hafa hugann við efnið. Hér á landi eru staddir belgískir blaðamenn á mínum vegum að veiða silung. Þeir veiddu í Grafará í einn dag og settu í tvær bleikjur en misstu. Ég skal viðurkenna það að mér leist ekkert á blikuna þegar þeir sögðu mér hvernig hefði farið en tók gleði mína á ný þegar ég fékk símtal í dag.

Flottur staður - Mynd Friðgeir Valdemarsson

Veiðimaður frá Akureyri fór og veiddi í ánni í hálfan dag í gær og setti í 5 bleikjur, landaði 3. Stærsta bleikjan var 50 cm og fullyrti Eyfirðingurinn að stærri fiskur hafi tekið tökuvarann hans. Frábærar fréttir og ég bíð nú bara mynda til að birta. Nú fer að aukast veiðiálag í Grafará og vonandi veiðin með. Allar komu bleikjurnar í gær á púpur andstreymis. ÉG hlakka til að komast sjálfur að veiða þarna.

Glæsileg mynd - Mynd Friðgeir Valdemarsson