Grafará við Hofsós – Veiðileyfi

Grafará er falleg og nett sjóbleikjuá í Skagafirði um 350 kílómetra frá Reykjavík. Veiðisvæðið er um 11 kílómetra langt og fjöldinn allur af veiðistöðum. Veitt er á tvær stangir og eru báðar stangirnar seldar saman í tveggja daga hollum. Leyfilegt agn er fluga og maðkur.  Veiðimenn mega hirða þrjár bleikjur á dag á hvora stöng fyrir sig en eftir það skal allri bleikju sleppt. Skylt er að sleppa öllum laxi og öllum urriða.

Undanfarin ár hefur sjóbleikjuveiði verið í nokkurri lægð sem vonandi fer þó að stíga upp á við á ný. Þangað til verða allir að gera hvað þeir geta til að viðhalda sjóbleikjustofninum í ánni og því setjum við kvóta upp á þrjár bleikjur á dag. Við gerum okkur grein fyrir að sjóbleikja er mjög góður matfiskur og við skiljum ósk veiðimanna að borða það sem þeir veiði. Hins vegar viljum við gera hvað við getum til að vernda stofninn og förum því þessa leið. Urriðastofninn er lítill og viðkvæmur í ánni og sömu sögu er að segja um laxinn. Þess vegna viljum við friða bæði laxinn og urriðann alveg og biðja veiðimenn að sleppa þeim fiskum.

Ekkert veiðihús er við ána en við bendum á að hægt er að fá gistingu á góðu verði á Hrauni við Sléttuhlíðarvatn. Þar fylgja veiðileyfi í vatninu svo að það er tilvalið fyrir fjölskylduna að fara saman og veiða í bæði stöðuvatni og straumvatni. Til að panta gistingu er hægt að hafa samband á Hraun í tölvupósti á mph@simnet.is.

Að sama skapi er hægt að fá gistingu á Hofsósi hjá Ferðaþjónustunni á Hofsósi. Pantanir í síma 453 7310 og á gisting@hofsos.is

Nú svo er líka tjaldstæði á Hofsósi sem ku vera mjög fínt.

Frekari upplýsingar um veiðileyfi á stjaniben@stjaniben.com eða í síma 867 5200

Veiðin hefst 15. júní og stendur hún til 15. september.

Verð 15. júní – 30. júní: 2.500 kr. fyrir stöngina, 10.000 kr. fyrir hollið

Verð 1. júlí – 21. júlí: 3.000 kr. fyrir stöngina, 12.000 kr. fyrir hollið

Verð 22. júlí – 15. sept: 2.500 kr. fyrir stöngina, 10.000 kr. fyrir hollið

Hér má sjá myndband frá því í fyrra úr Grafará:

Frekari upplýsingar um veiðileyfi á stjaniben@stjaniben.com eða í síma 867 5200

Hér að neðan eru svo myndir af ánni sem teknar voru í maí 2009.