Smá fréttir

Ég hef nú ekki verið að veiða mikið sjálfur undanfarið og því haft frá litlu að segja hér. En það fer nú vonandi að breytast sem fyrst. Ég tók nokkur köst í Minnivallalæk í gær og fékk þrjá urriða sem allir voru um pundið. Neðst í Hólmakvíslum sá ég nokkur kríli í uppítökum og settist [...]

Fréttir úr Grafará

Jæja það er nú orðið fullangt síðan síðast og kannski ekki að furða þar sem ég hef mikið verið úti á landi og þessi helv… 3G pungur virkar ekki sem skyldi. Ég er orðinn vel bakaður í framan með gleraugnafar og hvítt enni. Þvílíka veðurblíðan sem búin er að vera er með ólíkindum. Ég er [...]

Laxá á Refasveit – Ekki fyrir feita!!

Jæja þá er næst síðasta laxveiðitúr ársins lokið en sá stóð yfir í tvo daga á bökkum Laxár á Refasveit. Laxá rennur til sjávar í Húnaflóa ásamt mörgum af bestu laxveiðiám landsins. Laxáin er þriggja stanga á í dag en hefur alltaf verið einungis tveggja stanga. Við pabbi vorum þarna bara tveir og eins og [...]

Bleikja bleikja bleikja

Þá er ég kominn aftur í Breiðdalinn eftir ákaflega ánægjulega dvöl á Jöklusvæðinu. Ég eyddi heilum degi í því að skoða mig um þarna og kasta flugum í álitlega staði í Jöklu sjálfri. Þegar svo bar undir (á fjörunni) fór ég til veiða í Fögruhlíðarós og gerði fína veiði. Við vorum þarna fimm saman og náðum [...]

Stjáni Ben í Breiðdal – Í beinni!!

Fékk að fara í tölvuna í veiðihúsinu í Breiðdal. Kom hingað í gær og verð eitthvað í vikunni. Fórum í ósinn í kvöld og náðum þremur flottum bleikjum á hvítar straumflugur. Tók eitthvað af myndum sem ég skelli inn í vikunni en ég vill nota tölvuna mína í það. Tók líka myndir af þessum bleikjum [...]

Veiðidagbók 11. apríl 2008

Vaknaði eldsnemma í morgun og keyrði lærdóminn af stað. Uppúr kl.15 gat ég með góðri samvisku leyft mér að skjótast í smá veiði. Það var létt snjókoma þegar ég lagði í hann en alveg logn. Tók Sage þristinn minnn með svona til að gera hlutina eilítið skemmtilegri. Þegar ég svo kom að staðnum mínum sé [...]

Veiðidagbók 6. apríl 2008

Þetta er nú heldur betur búin að vera viðburðarík helgi. Vaknaði snemma í gær og hélt til Blönduósbæjar á ráðstefnu. Hitti þar fyrir fjöldann allan af toppfólki í ferðaþjónustu og átti góðan dag að mestu leyti. Þarf að skrifa annan póst um það sem ég fékk að upplifa á þessum degi þar sem ég er [...]

Veiðidagbókin komin af stað

Ég var víst búinn að lofa einhvers konar veiðidagbók hérna og finnst rétt að standa við það. Gafst upp á lærdómnum áðan og skellti mér í smá veiði. Sól og blíða en kalt, fraus í lykkjum og svona skemmtilegt. Fór á uppáhaldsstaðinn og sá strax að þar var fiskur, reyndi fyrir mér með púpum í [...]

Önnur “veiðiferð” ársins – önnur spikfeit bleikja

Var að koma í hús eftir að hafa viðrað mig aðeins við veiðar. Sagði frá því á dögunum að ég er nýbúinn að festa kaup á nýrri stöng og nýju hjóli á þá stöng. Ég var ekki búinn að prófa hana neitt að ráði nema þá aðeins á bílastæðinu fyrir utan hótel Þórisstaðir en það [...]

Fyrsta veiði”ferð” ársins

Skellti mér í smá veiði í dag þrátt fyrir rigningu og rok. Planið var að reyna að ná í þessa risa bleikju sem við Gummi sáum á fimmtudag og planið gekk upp. Bleikjan hafði færst sig ofar í lækinn í meiri straum og kastaði ég litlum hvítum nobbler fyrir hana. Þurfti að kasta á móti [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.