Styttist fluguveiði kvikmyndahátíð

Nú er farið að styttast all verulega í fyrstu fluguveiði kvikmyndahátíð sem haldin hefur verið hér á landi. Hátíðin heitir RISE og verður haldin í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54 þann 17. febrúar n.k. og opnar húsið kl. 19.30 með kynningum frá Veiðiþjónustunni Strengjum, Mexíkó ferðum með Iceland Angling Travel, veiðigræjum, vöðlum, stöngum og hjólum frá [...]

RISE – Fluguveiði Kvikmyndahátíð 17. Febrúar í Bíó Paradís

Þann 17. Febrúar n.k. verður haldin Fluguveiði Kvikmyndahátíð í Bíó Paradís undir merkjum RISE – Flyfishing Film Festival og er hún liður í Evróputúr hátíðarinnar. RISE hefur nú verið haldin í fimm ár víða um heim og er áætlað að um 3.000 erlendir veiðimenn hafi barið þessa glæsilegu sýningu augum. Nú er komið að okkur [...]

The Source – Ísland (ný stangveiðimynd) lendir í næstu viku!!

The Source – Ísland er ný stangveiðimynd sem mun koma út á Íslandi í næstu viku. Myndin var tekin upp hér á landi sumarið 2009 og sýnir fluguveiði á Íslandi með augum útlendingsins – öðruvísi en við höfum nokkurn tímann séð áður. Ég var svo heppinn að fá að taka þátt í þessari vinnu og [...]

Pælingar

Nú styttist í annan endann á þessari veiðivertíð fyrir mig því í næstu viku byrjar skólinn á fullum krafti. Ég er að fara á síðasta árið mitt í ferðamálafræði við Háskólann á Hólum og hlakka mikið til. Veturinn í vetur mun snúast að mestu leyti um BA verkefnið mitt og Manchester United þó svo efnið [...]

Eyðilegging við Urriðakotsvatn

Ákvað að renna mér upp á Urriðakotsvatn í veðurblíðunni í gærkvöldi til að reyna við urriðann sterka sem er þarna. Blasti við mér þessi eyðilegging. það er langt síðan ég fór þarna síðast og ennþá lengra síðan ég fór austan megin í vatnið. Gat ekki setið á mér að taka nokkrar myndir af þessu öllu [...]

1. maí – Veiðidagur fjölskyldunnar

Fríið í gær, 1. maí, var nýtt til að kveikja áhugann hjá ungviðinu á veiði. Það má eiginlega segja að ég sé hrikalega uppáþrengjandi með veiðidelluna en svo má aftur segja að ef öll fjölskyldan hefur gaman af því að veiða þá er veiðin ekkert nema holl útivera fyrir alla fjölskylduna og það sýndi sig [...]

Minnivallalækur 24.-27. apríl 2008

Fyrsti alvöru veiðitúr ársins var árlegur veiðitúr okkar félaganna í Minnivallalæk. Komum á staðinn í ágætis veðri á fimmtudag og ég dró svæði 2 sem þýðir Viðarhólmi til og með Húsaflúð. Fékk strákana til að skutla mér niður í Guðbrandshyl og ég veiddi mig svo upp ána og upp í hús án árangurs. Sá mikið [...]

Veiðidagbókin komin af stað

Ég var víst búinn að lofa einhvers konar veiðidagbók hérna og finnst rétt að standa við það. Gafst upp á lærdómnum áðan og skellti mér í smá veiði. Sól og blíða en kalt, fraus í lykkjum og svona skemmtilegt. Fór á uppáhaldsstaðinn og sá strax að þar var fiskur, reyndi fyrir mér með púpum í [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.