Þvílíkir fiskar!!

Síðasta vika er búin að vera rosaleg hvað veiði varðar. Byrjum á laugardagskvöldið fyrir rúmri viku. Kom í hús í Minnivallalæk seint og það var ákveðið að geyma veiði þann daginn. Svo er ég staddur bakvið hús í símanum þegar ég sé eitthvað stórt snúa sér í litla strengnum sem rennur við húsbakkann þar sem [...]

Smá fréttir

Ég hef nú ekki verið að veiða mikið sjálfur undanfarið og því haft frá litlu að segja hér. En það fer nú vonandi að breytast sem fyrst. Ég tók nokkur köst í Minnivallalæk í gær og fékk þrjá urriða sem allir voru um pundið. Neðst í Hólmakvíslum sá ég nokkur kríli í uppítökum og settist [...]

Stórir urriðar úr Minnivallalæk

Loksins þegar ég hef tíma til að skrifa er um að gera að moka bara inn nýjum póstum. Betra samt að aðskilja hverja veiðiferð fyrir sig. Marg umræddur bandaríkjamaður sem fór með okkur strákunum á Grímstunguheiði hefur undanfarnar vikur flakkað um landið að veiða silung. Í gær veiddi hann í Minnivallalæk og ég fór með [...]

Minnivallalækur 29. maí

Skaust aðeins í Minnivallalæk í gær að sýna veiðimönnum sem þar voru hvar fisk væri helst að finna. Kom á staðinn í vægast sagt ógeðslegu veðri, hávaðaroki og rigningu. Eftir að hafa reynt við Arnarhólsþrengslin, Arnarhólsbreiðu og flúð var ákveðið að hendast aðeins í Stövarhylinn fyrir hádegismat. Efst í Stöðvarhylnum fékk veiðimaður fallegan c.a. 2 [...]

Minnivallalækur 23.-26. apríl 2009

Þá er fyrsta eiginlega veiðitúr ársins lokið, árlegum veiðitúr félaganna í Minnivallalæk. Eitthvað fór nú minna fyrir veiði en undanfarin ár og náðum við aðeins þremur fiskum á land. Komum í hús á fimmtudagseftirmiðdegi í fínu veðri með bros á vör og magann fullan af KFC. Settum saman stangir, gengum frá matvöru og gerðum okkur [...]

Uppfærð veiðistaðalýsing fyrir Minnivallalæk – Fyrsti hluti

Þar sem ég hef verið í burtu upp á síðkastið hef ég ekki verið duglegur að uppfæra síðuna og biðst ég afsökunar á því. Ég var í fríi en þó ekki að veiða og hef í raun engar ferskar veiðifréttir aðrar en þær sem allir veiðimiðlar landsins eru búnir að birta. Það skiptir þó ekki [...]

Vikan – Part 1

Jæja þá er komið að því að birta alla sólarsöguna úr síðustu ferð. Tók á móti gestunum í Reykjavík á sunnudagsmorgninum og við lögðum af stað í Landsveitina nánar tiltekið í Minnivallalæk. Mjög erfiðar aðstæður tóku á móti okkur þar sem veðrið var vægast sagt hundleiðinlegt. Fyrsta kvöldið fær einn gestanna mjög flottan fisk sem [...]

Skyldan kallar

Jæja þá er kominn tími til að fara að vinna. Næstu daga verð ég við störf í uppáhalds ánni minni, Minnivallalæk að sýna erlendum veiðimönnum hvar helst er að hitta á stóra urriða. Gæti það verið betra??? Þaðan er stefnan tekin á Húseyjarkvísl í Skagafirði þar sem planið er að leyfa öðrum að sýna en [...]

Minnivallalækur klikkar ekki – Myndir

Jæja þá er ég kominn aftur í netsamband eftir að hafa eytt fjórum dögum við veiðar í Minnivallalæk. Ég var nú reyndar ekki þarna í persónulegum erindagjörðum heldur var ég að sýna útlendingum hvað við erum með mikið af stórum urriðum á Íslandi. Minnivallalækur er einmitt kjörinn staður til að sýna slíka gripi og það [...]

Styttist í nýja síðu

Ég er á fullu þessa dagana að setja upp nýja síðu fyrir bloggið og allt draslið mitt á www.stjaniben.com. Ég er svona að undirbúa flutning en það tekur sinn tíma að setja inn allar myndirnar og allt draslið héðan. Ég reikna þó ekki með að síðan verði komin almennilega í gagnið fyrren seint í haust [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.