Smá video með hnýturunum úr Silungaflugum

Hér fyrir neðan er smá video með þeim hnýturum sem mesta púðrinu er eytt í í bókinni Silungaflugur. Þessi litlu myndbrot tók Lárus Karl Ingason ljósmyndari og útgefandi af þessum meisturum fyrir bókina. Njótið vel og ég minni á að hér fyrir neðan er hægt að sjá hvar hægt er að kaupa bókina.

Silungaflugur fást í eftirtöldum verslunum

Nú er vika liðin og ég loksins að koma með þennan lista sem ég var búinn að lofa fyrir löngu. Annríki er um að kenna en betra er seint en aldrei. Bókin fæst nú í eftirtöldum verslunum: Veiðibúðir: Veiðibúðin við Lækinn Veiðivon Vesturröst Bónus: Hafnarfjörður Helluhrauni Granda Holtagarðar Grafarvogur – Spöng Kjörgarður – Laugavegi Akureyri [...]

Fleiri útsölustaðir bókarinnar Silungaflugur

Jæja þá.. meira um bókina Silungaflugur. Ég var búinn að lofa fréttum um það hvar hægt er að kaupa bókina og hér eru viðbætur. Bókin fæst nú í Bónus Spöng, Korputorgi, Holtagörðum, Ögurhvarfi og Granda. Einnig á hún að vera til í Eymundsson búðunum og Hagkaup. Set inn frekari fréttir von bráðar. Fyrir þá sem [...]

Silungaflugur er komin í verslanir!!!

Bókin Silungaflugur fór í dreifingu í allar helstu verslanir í dag. Meðal búða sem ég veit að eru komnar með eintök eru Veiðibúðin við Lækinn, Bónus Holtagörðum og Bónus Spöng. Ég reikna með að dreifing fari langt um helgina og hægt verði að nálgast eintök í bæði Eymundsson og Hagkaup líka. Ég hendi inn sölustöðum [...]

Ný bók að koma – Silungaflugur

Árið 2006 kom út bókin Laxaflugur þar sem Bjarni Róbert Jónsson og Valgarður Ragnarsson völdu og hnýttu laxaflugur en Lárus Karl Ingason tók myndirnar. Bókin hitti vel í mark og er nú uppseld hjá útgefanda. Í fyrra kom út bókin Straumflugur og í þetta sinn var það enginn annar en Sigurður Pálsson sem valdi og [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.