Stutt 1. maí færsla

Fór í kvöld í smá veiði með stjúpsyni mínum sem er 12 ára. Byrjuðum í Kleifarvatni og reyndum fyrir okkur þar en án árangurs. Heyrðum af fínni veiði þar undanfarna daga en klikkuðum að spyrja hvar og hvernig. Gáfum Kleifarvatninu ekki mikinn séns áður en við komum við í Urriðakotsvatni á leiðinni heim. Lögðum bílnum [...]

Veiði í Skagafirði um helgina?

Kannist þið við það að vera staddir/stödd við stöðu- eða straumvatn í golu og svo allt í einu lygnir? Og um leið og lygnir farið að sjá uppítökur útum allt? Farið á hnén, bætt grönnum flúorkarbon enda framan á tauminn, tekið fram þurrflugurnar og reynt að hnýta eina á tauminn? En um leið og lygndi [...]

Stærðin skiptir máli – Smá vangaveltur

Jafnvel þó ég hafi alltaf haldið því fram að stærðin skipti engu máli þá er rétt að taka það fram að ég er að tala um veiði núna og þar skiptir stærðin máli í mínum huga. Rétt er að taka það fram strax í upphafi að ég er nýr í veiðinni og veit ekki mikið [...]

Sog Ásgarður – Silungasvæði

Eins og ég hef áður sagt frá þá höfum við frúin verið að fara að veiða svolítið saman og ég er að gera mitt besta til að smita hana af veiðidellunni. Við erum saman á stöng í Laxá í Nesjum í ágúst og því fannst mér alveg nauðsynlegt að við gætum farið og æft okkur [...]

Netaveiði og önnur veiði – Varúð! Langur pistill

Varúð. Þessi pistill er langur og í raun ekki um neitt nema mínar eigin vangaveltur um netaveiði. Eins og sést er hann mjög langur. Ég get ekki annað en lagt orð í belg í ljósi umræðunnar sem nú á sér stað í netheimum. Sú skelfilega frétt birtist að ekki fékkst styrkur til að kaupa netin [...]

Hornafjörður Part 1

Ég er búinn að vera mikið á ferðinni að skoða eitt og annað og veiða. Var að koma heim frá Hornafirði þar sem ég var að skoða mig um og veiða. Þarf að henda inn sögunni í mörgum pörtum þar sem ég þarf aftur að rjúka út í kvöld svo hér er Part 1. Fór þarna [...]

Veidimenn.is

Jæja þá er komið að því!!! Nú er ég farinn að skrifa á veidimenn.is og mun ég vera með reglulega pistla þar í sumar allavega til að byrja með. Þar ætla ég að miðla reynslu minni af veiðinni í sumar bæði fréttum og eitthvað af fróðleik. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég [...]

Eyðilegging við Urriðakotsvatn

Ákvað að renna mér upp á Urriðakotsvatn í veðurblíðunni í gærkvöldi til að reyna við urriðann sterka sem er þarna. Blasti við mér þessi eyðilegging. það er langt síðan ég fór þarna síðast og ennþá lengra síðan ég fór austan megin í vatnið. Gat ekki setið á mér að taka nokkrar myndir af þessu öllu [...]

Silungsveiði

Eins og ég hafði sagt frá hérna á undan fórum við familían að veiða á fimmtudag með ákaflega litlum árangri. Ég var líka búinn að segja að við ætluðum að fara nú um helgina og ná þessum fimm fiska kvóta í Reynisvatni. Sem og við gerðum. Vöknuðum snemma í gærmorgun og ákváðum að byrja daginn [...]

Veiðidagbók 11. apríl 2008

Vaknaði eldsnemma í morgun og keyrði lærdóminn af stað. Uppúr kl.15 gat ég með góðri samvisku leyft mér að skjótast í smá veiði. Það var létt snjókoma þegar ég lagði í hann en alveg logn. Tók Sage þristinn minnn með svona til að gera hlutina eilítið skemmtilegri. Þegar ég svo kom að staðnum mínum sé [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.