Smá fréttir

Ég hef nú ekki verið að veiða mikið sjálfur undanfarið og því haft frá litlu að segja hér. En það fer nú vonandi að breytast sem fyrst. Ég tók nokkur köst í Minnivallalæk í gær og fékk þrjá urriða sem allir voru um pundið. Neðst í Hólmakvíslum sá ég nokkur kríli í uppítökum og settist [...]

Galtalækur í góða veðrinu í gær

Undanfarna 20 daga hefur veitt hér á landi bandaríkjamaður á mínum vegum og hann hefur veitt vel. Síðasti dagurinn hans var í gær og mér tókst að hafa uppi á leyfi fyrir hann í Galtalæk með ótrúlegri heppni. Hann hafði veitt þar einn dag áður og gert góða veiði og vildi ólmur komast aftur. Fyrir, [...]

Minnivallalækur 29. maí

Skaust aðeins í Minnivallalæk í gær að sýna veiðimönnum sem þar voru hvar fisk væri helst að finna. Kom á staðinn í vægast sagt ógeðslegu veðri, hávaðaroki og rigningu. Eftir að hafa reynt við Arnarhólsþrengslin, Arnarhólsbreiðu og flúð var ákveðið að hendast aðeins í Stövarhylinn fyrir hádegismat. Efst í Stöðvarhylnum fékk veiðimaður fallegan c.a. 2 [...]

Góður dagur í Urriðakotsvatni

Það þarf víst ekkert að nefna hana neitt sérstaklega blíðuna sem glatt hefur hjörtu borgarbúa undanfarna daga. Við fjölskyldan ákváðum að skella okkur í Urriðakotsvatn nú síðdegis að eyða þessum örfáu möðkum sem til voru á heimilinu. Það fer ekkert vel í frúna að vera með maðka í ískápnum og það er svo sem ekki [...]

Minnivallalækur 23.-26. apríl 2009

Þá er fyrsta eiginlega veiðitúr ársins lokið, árlegum veiðitúr félaganna í Minnivallalæk. Eitthvað fór nú minna fyrir veiði en undanfarin ár og náðum við aðeins þremur fiskum á land. Komum í hús á fimmtudagseftirmiðdegi í fínu veðri með bros á vör og magann fullan af KFC. Settum saman stangir, gengum frá matvöru og gerðum okkur [...]

Sex urriðar úr skurði í Hegranesi

Í dag rann loksins upp sá dagur sem ég hef beðið eftir með óþreyju í tæp 3 ár, síðasti skóladagurinn. Uppúr klukkan 13:00 var ég farinn að steikjast all svakalega í skólastofunni og hugurinn var kominn út við á. Klukkan rúmlega 14 var þessu loksins lokið og það ljóst að ég þarf ekki að mæta [...]

Fyrsti fiskurinn á land

Í gær ákvað ég að taka léttan skrepping í Urriðakotsvatn í góða veðrinu. Setti saman og byrjaði að kasta neðan við hlíðina að norðan verðu. Þegar ég hafði barið þá vík í smá tíma ákvað ég að rölta bara yfir í víkina sem alltaf gefur mér fisk, víkina við golfvöllinn. Ég hafði kannski tekið þrjú [...]

Vangaveltur

Ég hef alltaf reynt að blanda mér ekki í umræður um umdeild mál nema þegar kemur að því að ræða enska boltann en þar er alltaf hægt að ná mér. Ég er búinn að vera að fylgjast með þessum umræðum um urriðasvæðin þarna fyrir norðan á veiði.is og í raun ekkert spáð í því almennilega. [...]

Enn um sjóbirtinga og staðbundna

Ég skrifaði póst hérna fyrr í sumar eftir að ég fékk tölvupóst frá Guðmundi Guðjónssyni ritstjóra Vötnogveiði.is um útlitsmun á sjóbirtingum og staðbundnum urriðum. Efni þessa tölvupósts var það hvort ég væri ekki að rugla með það að fiskurinn sem kærastan mín fékk í Þverá í Fljótshlíð hafi verið sjóbirtingur eða ekki. Guðjón vildi meina [...]

Ævintýri á Skagaheiði

Þegar ég kom heim í dag hundfúll yfir lélegum leik minna manna var ég hálf öfugsnúinn eitthvað og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera. Veðrið var alveg frábært og tilvalið að skella sér að veiða en ég var samt eitthvað óviss og óákveðinn. Hringdi í konuna og hún hvatti mig að skella [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.