Opnunin í Grafará

Jæja þá er búið að opna Grafará og verður að segjast að heldur var opnunin dauf því aðeins tvær bleikjur komu á land í þá tvo daga sem opnunarhollið var við veiðar. Það er vonandi að rætist úr núna fljótlega og sjálfur er ég að fara norður í byrjun júlí og næ þá vonandi að [...]

Ímynduð ferð til Rio Grande

Þessa dagana er ég að vinna verkefni í skólanum, nánar tiltekið í áfanga sem heitir “Tourism geographies”. Verkefnið snýst að miklu leyti um mitt eigið verkefnaval og ég valdi að setja saman ferð fyrir fjóra fluguveiðisjúklinga til Argentínu. Tímamörkin eru 2 vikur svo að ég hef aðeins 14 daga frá því ég fer frá Íslandi [...]

Um verð á veiðileyfum

Það væri kannski ekki úr vegi að byrja á því að óska veiðimönnum öllum og þeirra fjölskyldum gleðilegs nýs árs svona í tilefni fyrsta pósts þessa nýja árs. Ég geri mér grein fyrir því að ég hef verið latur að skrifa enda um lítið að skrifa þessa dagana hjá mér. Ég skildi allt veiðidótið eftir [...]

Vangaveltur

Ég hef alltaf reynt að blanda mér ekki í umræður um umdeild mál nema þegar kemur að því að ræða enska boltann en þar er alltaf hægt að ná mér. Ég er búinn að vera að fylgjast með þessum umræðum um urriðasvæðin þarna fyrir norðan á veiði.is og í raun ekkert spáð í því almennilega. [...]

Metaregn í laxveiði – Verðhækkanir?

Jæja var að fá nýjustu frétt landsambands veiðifélaga sent í tölvupósti þar sem farið er yfir þetta metaregn í laxveiði sem löngu er orðin staðreynd. Ég velti þessu aðeins fyrir mér og ég var mjög kátur með að fá tækifæri til að taka þátt í þessu öllu saman í sumar. Ég fór í fjóra laxveiðitúra [...]

Bara rugl í Breiðdalsá

Ég veit, ég veit, ég er ekki með neinar ferskar fréttir. En ég er svo kátur yfir þessu stórlaxaævintýri í Breiðdalsá þessa dagana. Nú eru að minnsta kosti komnir þrír laxar yfir 20 pund og einn þeirra sem var viktaður úr klakkistunni viktaði 23,5 pund. Maður spyr sig bara hvað 102 cm hrygnan hafði viktað [...]

Laxá í Nesjum – Holl til sölu 21.-24. ágúst

Um er að ræða báðar stangirnar í þrjá daga frá seinni part fimmtudagsins 21. ágúst fram á hádegi sunnudagsins 24. ágúst. Veiðihús fylgir með veiðileyfum. Laxá í Nesjum er staðsett í Nesja hverfi í Hornafirði. Nánari upplýsingar um ána má finna á vef Veiðiþjónustunnar Strengja. Árið 2007 veiddust í ánni 183 laxar, 14 staðbundnir urriðar, [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.