Breytingar

Jæja þá hef ég aðeins tekið til á síðunni og breytt uppsetningu lítið eitt. Hlekkir í gömlum póstum gætu sumir hverjir hafa breyst við þessar breytingar en ég vona að það valdi ekki óþægindum. Ég varð að hreinsa til í undirsíðunum til þess að koma fyrir öllum myndunum og því sem koma skal á nýju [...]

Fleiri skemmtilegar myndir

Var að fá fleiri myndir sendar úr sömu seríu og ég birti hérna mynd í gær. Nú er ég búinn að setja allar þessar myndir í nýja möppu sem heitir Laxá í Nesjum – Myndir frá Valdimar Guðjónssyni. Færi ég Valda kærar þakkir fyrir þessar flottu myndir.

Haffjarðará – Fimmti hluti

Nú var komið að síðustu vaktinni og hollið komið í 31 lax og tvo birtinga. Kallinn átti enn eftir að fá fisk og var sá eini sem var salla rólegur yfir því. Þar er á ferðinni áratuga reynsla í laxveiðum og því engin ástæða að örvænta. Menn sem náðu í skottið á stórlaxaveiðum hér á [...]

Haffjarðará – Fjórði hluti

Þessi taka fyrir hádegi hafði allt að segja fyrir andlegt ástand mitt og ég fann það á mér að ég var að detta í stuð. Fyrsti staðurinn var Kúla þar sem við sáum lax stökkva þegar við lögðum bílunum rétt við staðinn. Ég er svo heppinn að eiga vingjarnlegan og hjálpsaman frænda sem vill svo [...]

Haffjarðará – Annar hluti – myndir

Þá hefst hin eiginlega umfjöllun um túrinn en ég hef í huga að skrifa greinar um þau mál sem voru mér ofarlega í huga í túrnum. Komum í hús á fimmtudag og byrjuðum að setja saman. Þegar allir voru komnir ákváðum við hverjir yrðu saman á svæði og hverjir myndu byrja hvar. Í Haffjarðará er [...]

Skemmtilegar myndir

Jæja stundum leitar maður langt yfir skammt. Ég komst að því að ég er búinn að vera í þráðlausu netsambandi allan tímann svo að ég þurfti ekki að vera að standa í þessu veseni. Hvað um það. Ég var að setja inn nýja möppu með myndum héðan að austan undir heitinu Þveit – Hoffellsá. Ágúst [...]

Myndband úr Breiðdalsá – Fleiri stórlaxar

Jæja ég er víst ekkert skárri en hinir veiðivefirnir, ég er bara með sömu fréttirnar og þeir. Ég hins vegar er jafnvel að hugsa um að vera ekkert að vesenast með að minnast á þessa stórlaxa sem veiddust í Breiðdalsá í gær heldur setja bara inn hlekkinn á skemmtilegt video sem birt var á vefnum [...]

Fleiri myndir – Komnar í “möppur”

Jæja þá fattaði ég loksins hvernig ég kem myndunum í möppur… eða öllu heldur hálfgerðar möppur. Bætti við enn fleiri myndum sem ég átti á lager og held áfram á morgun. Kíkið á þetta….

Myndir frá Nico de Boer

Ég sagði frá því í gær að ég hefi fengið sendar myndir frá Hollenskum blaðamanni sem var hér við veiðar ekki alls fyrir löngu. Hann sendi mér myndir í gær en vildi ekki gefa leyfi á að birta þær hér alveg strax og ég virti það við hann. Í morgun fékk ég hins vegar tölvupóst [...]

Fyrsta helgin í júlí – Brúará og fleira

Jæja þá er ég loksins kominn í bæinn og loksins kominn með tölvuna mína í hendurnar aftur (það er nú saga að segja frá sem kemur seinna). Þar sem Breiðdalsáin var óveiðanleg ákvað ég að fara heim degi fyrr en áætlað var og sleppa því bara að veiða sjálfur þarna. ÚFFFFF svo taka þeir 22 [...]

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.