Um síðuna, bloggið og mig

Ég heiti Kristján Benediktsson og er Hafnfirðingur í húð og hár. Ég hef mikinn áhuga, sem jaðrar við þráhyggju, á fluguveiði og Manchester United.

Ástæðan fyrir því að ég ákvað að byrja að blogga var sú að ég las mjög skemmtilega bók um markaðssetningu á internetinu. Ég er að læra ferðamálafræði í Háskólanum á Hólum og fékk mikinn áhuga á markaðsfræði strax á fyrstu önn í náminu. Þessi áhugi varð til þess að ég pantaði mér umrædda bók og í kjölfarið ákvað ég að byrja að blogga. Án þess í raun að hafa eitthvað mikið að segja ákvað ég að byrja bara og sjá hvert það myndi leiða mig. Ég geri tilraunir hérna til með það sem bókin kennir til að sjá hvernig og hvort þær kenningar virki í raun og veru. Hérna ætla ég líka að reyna að deila þessum áhuga mínum á internet markaðssetningu og góðri markaðssetningu á þjónustu.

En síðan þjónar líka öðrum tilgangi sem snýr að áhuga mínum um fluguveiði. Hérna mun ég halda úti virkri dagbók um alla veiðitúra mína sumarið 2008 til að byrja með. Ég hef lengi ætlað að halda veiðidagbók fyrir sjálfan mig en með því að birta hana fyrir heiminum get ég vonandi miðlað reynslu, fengið athugasemdir og góð ráð frá öðrum sem lengra eru komnir og hafa meiri reynslu. Ég er með undirsíðu sem ber heitið Veiðimyndir þar sem gefur að líta myndir sem ég eða vinir mínir hafa tekið úr veiði víða um land og mun ég bæta við myndum jafnt og þétt eftir því sem líður á.

Ég vill líka miðla þekkingu um veiðisvæði sem ég þekki vel með það í huga að fá viðbrögð, ábendingar og góð ráð sem munu nýtast mér og hverjum sem lesa og hafa áhuga á veiði vel.

Myspace síðan mín er www.myspace.com/stjaniben

msn: stjaniben@msn.com

Netfang: stjaniben@icelandangling.com

Heimasíðan er: www.icelandangling.com

Hitt bloggið mitt er: www.icelandangling.wordpress.com

Update ágúst 2008:

Þetta gengur allt svona líka svakalega vel og alltaf aukast heimsóknir á síðuna. Ég hef ákveðið að halda mig við veiðiumfjöllun á þessari síðu og svo halda úti svipuðu efni á ensku síðunni minni. Allar ábendingar, fréttir, myndir og fleira um veiði eru vel þegnar. Ef menn hafa fréttir að færa af svæðum sem alla jafnan er ekki mikið fjallað um er um að gera að senda mér fréttir og myndir á tölvupóst og ég geri hvað ég get til að skrifa um svæðin. Best er auðvitað að bjóða mér bara að veiða á viðkomandi svæði og láta mig svo um fréttaflutning en það er auðvitað annað mál ;)

3 svör

  1. Þakka þér fyrir góða síðu. Var að lesa um ferðir þínar 13 og 14 sept á Skagaheiði. Datt í hug þar sem þú ert við nám á Hólum að veturinn 2003 og 2004
    fórum við nokkrir félagar í fiskeldinu niður að Neðri Ás í Hjaltadal og fiktuðum í tjörnini sem er alveg við veginn.
    Bleikja og urriði ekki stórir en stutt að fara til að dreifa huganum. Svo er nátla tjarnirnar hjá Frikka í Hólalax sem voru á forræði ferðamálad, yfir sumarið. Gángi þér vel og takk aftur fyrir fína síðu.

  2. ég var að leita hver má finna veiðileifi fyrir Húseyjarkvísl í may?
    takk og mjog finn blog!!

  3. Það væri gaman að fá álit þitt, sem ferðamálafræðings og markaðsáhugamanns, á nýsköpunarhugmynd í ferðaþjónustu sem ég geng með í maganum. Smelltu á mig tölvupósti ef þú værir til í að kíkja á þetta.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.